Halldór Kiljan Laxness , Bráðum kemur betri tíð.
Bráðum kemur betri tíð með blóm í haga,
sæta langa sumardaga.

Sanguisorba officinalis
Ættkvísl   Sanguisorba
     
Nafn   officinalis
     
Höfundur   L.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Blóðkollur
     
Ætt   Rósaætt (Rosaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Dökkrauður.
     
Blómgunartími   Ágúst.
     
Hæð   40-90 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Blóðkollur
Vaxtarlag   Fjölær jurt, allt að 100 sm há.
     
Lýsing   Jarðstönglar skriðulir, nokkuð stinnir, stönglar uppréttir, greinóttir ofantil, oft rauðir. Stöngullauf smá, legglaus, grunnlauf oftast með 7-25 smálauf, smálaufin allt að 5 x 3,5 sm, aflöng-egglaga eða oddbaugótt, snubbótt, hjartalaga eða þverstýfð við grunninn, hárlaus, dökkgræn og glansandi á efra borði, verða bláleit og daufgræn á neðra borði, sagtennt-tennt, 10-12 tennur á hvorri hlið, langyddar, laufleggur allt að 3 sm, rauður. Blómin dökkrauðbrún eða næstum svarpurpura, tvíkynja, í breiðoddbaugóttum eða stutt-sívölum kollum allt að 3 sm, blómskipunarleggir langir, uppréttir, stoðblöð aflöng-egglaga, himnukennd, brún-dúnhærð. Bikarflipar oddbaugótt eða egglaga. Frjóhnappar smáir, dökkrauðir, frjóþræðir rauðir. Fræni stutt-mjúkhærð. Bikarpípa með stinn snubbótt rif, lítillega vængjuð.
     
Heimkynni   V Evrópa, (Ísland), N Ameríka, Mongólía, Japan, Kína.
     
Jarðvegur   Léttur, jafnrakur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   4
     
Heimildir   = 1
     
Fjölgun   Skipting, sáning.
     
Notkun/nytjar   Í fjölæringabeð, í raðir, í þyrpingar.
     
Reynsla   Þrífst vel í Lystigaðinum. Harðgerð planta, notuð töluvert til lækninga hér áður fyrr.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Blóðkollur
Blóðkollur
Blóðkollur
Blóðkollur
Blóðkollur
Blóðkollur
Blóðkollur
Blóðkollur
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is