Málsháttur
Engin er rós án þyrna.
Sanguisorba hakusanensis
Ættkvísl   Sanguisorba
     
Nafn   hakusanensis
     
Höfundur   Mak.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Roðakollur
     
Ætt   Rósaætt (Rosaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Djúp-bleikpurpura.
     
Blómgunartími   Ágúst.
     
Hæð   - 80 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Stönglar uppréttir, oft greindir ofan til, hárlausir.
     
Lýsing   Stöngullaufin eru oftast með mjúkum aðlægum hárum við grunninn. Grunnlaufin stakfjöðruð, smáblöð að 6 x 3.5 sm, 9-13 saman, aflöng til egglaga-aflöng, snubbótt, hjartalaga við grunnin eða snubbótt, grófsagtennt, blágræn á neðra borði, blaðstilkar að 7 mm. Blómin djúp bleikpurpura, í fáum, hangandi axleitum, löngum-sívölum blómskipunum, axið allt að 10 x 1 sm á lengd, frævlar 9-11 allt að 1 sm, frjóþræðir dökkpurpuralitir, hliðflatir, breikka upp á við. Frjóhnappar föl-gulbrúnir, djúpbrúnir við grunninn.
     
Heimkynni   Japan, Kórea.
     
Jarðvegur   Léttur, meðalrakur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   7
     
Heimildir   = 1
     
Fjölgun   Skipting, sáning.
     
Notkun/nytjar   Í fjölæringabeð, í þyrpingar.
     
Reynsla   Hefur reynst vel í görðum hér.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is