Ólafur Jóhann Sigurðsson - Á vordegi
Grundin eignast gullinn fífil,
geislafingur hlýir strjúka
lambakóng með lítinn hnýfil,
lambagrasið rauða og mjúka.

Vappar tjaldur, vellir spói,
verpir í broki mýrispýta.
Bráðum kveikir fenjaflói
fífublysið mjallahvíta.

Bráðum mun í morgunstillu
meðan þokan kveður dranga
ljósberi hjá lágri syllu
lyfta kolli til að anga.

Blíða daga, bjartar nætur
bugðast á með tærum hyljum
eftir laut sem litlir fætur
lásu forðum berum iljum.


Scabiosa caucasica 'Clive Greaves'
Ættkvísl   Scabiosa
     
Nafn   caucasica
     
Höfundur   Bieb.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form   'Clive Greaves'
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Systrablóm
     
Ætt   Stúfuætt (Dipsacaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Sól, hálfskuggi.
     
Blómlitur   Ljósgráfjólublár.
     
Blómgunartími   September.
     
Hæð   - 60 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Fjölær jurt, allt að 60 sm. Stönglar ógreindir eða lítið eitt greinóttir.
     
Lýsing   Grunnlauf lensulaga, langydd, heilrend, grágræn, hárlaus, stöngullauf fjaðurskert. Blómin ljósgráfjólublá, fjölmörg, í geislaformaðri körfu allt að 7,5 sm í þvermál, reifar hærðar.
     
Heimkynni   Yrki.
     
Jarðvegur   Djúpur, frjór.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   6
     
Heimildir   = 1
     
Fjölgun   Sáning, skipting.
     
Notkun/nytjar   Í skrautblómabeð, sem undirgróður.
     
Reynsla  
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is