Sigfús Daðason - Vængjasláttur Akureyri
mjög skreytt
reynitrjám.
Sá sem gengi um bæinn
á septemberkvöldi:
dimmur skuggi innfjarðarins
fylgdi honum á aðra hönd hvar sem hann færi,
lifandi, kvikur!
Sálarspegill!
Heilagur lundur
rís í hæðir.
Og gangi maður í lundinn
er hann þar einn með sjálfum sér.
Það gustar um limið
og fuglarnir í björtum trjákrónunum
fælast skóhljóð einmanans
og hviðra með vængjaslætti
yfir höfði hans og úti í myrkrinu.
Og upp fyrir honum rennur þá: hvílík
sú dýrð sem einmananum hlotnast.
|
Ættkvísl |
|
Sedum |
|
|
|
Nafn |
|
spathulifolium |
|
|
|
Höfundur |
|
Hook. |
|
|
|
Ssp./var |
|
|
|
|
|
Höfundur undirteg. |
|
|
|
|
|
Yrki form |
|
|
|
|
|
Höf. |
|
|
|
|
|
Íslenskt nafn |
|
Spaðahnoðri |
|
|
|
Ætt |
|
Hnoðraætt (Crassulaceae). |
|
|
|
Samheiti |
|
|
|
|
|
Lífsform |
|
Fjölær jurt. |
|
|
|
Kjörlendi |
|
Sól. |
|
|
|
Blómlitur |
|
Gulur. |
|
|
|
Blómgunartími |
|
Júlí. |
|
|
|
Hæð |
|
5-15 sm |
|
|
|
Vaxtarhraði |
|
|
|
|
|
|
|
|
Vaxtarlag |
|
Þéttvaxin, myndar þyrpingu, 9-15 sm.
|
|
|
|
Lýsing |
|
Stönglar stuttir, myndar oft langar renglur frá runni þyrpingar. Lauf um 18 mm, í þéttum hvirfingum á stöngulendunum. spaðalaga, með legg, uppsveigð, flöt, oddlaus, mjókka niður. Lauf á blómstöngli mjög smá, strjál, aflöng-oddbaugótt, legglaus. Blómskipunin í 3-skiptum, margblóma, flötum skúf, blómin legglaus, þétt, 15 mm í þvermál. Bikarblöð 5, þríhyrnd, ydd, hálf lengd krónublaðanna. Krónublöð 5, lensulaga, ydd, gul, fræflar 10 , frjóhnappar gulir. Fræhýði gul.
blómst. 10-12cm með mjó blöð og blóm í Þéttum skúf, stjörnlaga, blöðin ljósgrágræn, stutt breið spaðalaga, þau yngstu hvítmélug |
|
|
|
Heimkynni |
|
V N Ameríka. |
|
|
|
Jarðvegur |
|
Sendinn, framræstur. |
|
|
|
Sjúkdómar |
|
|
|
|
|
Harka |
|
7 |
|
|
|
Heimildir |
|
= 1 |
|
|
|
Fjölgun |
|
Skipting, sáning, græðlingar. |
|
|
|
Notkun/nytjar |
|
Í breiður, í kanta, í fláa, í hleðslur, í beð, í steinhæðir. |
|
|
|
Reynsla |
|
Harðgerður-meðalharðgerður, þrífst betur norðanlands en sunnan. |
|
|
|
Yrki og undirteg. |
|
var. purpureum með tvílitar blaðhvirfingar (hárauð/ljósgrá), 'Cape Blanco' með öll blöðin ljósgrá (Héluhnoðri), hann er viðkvæmari en aðaltegundin. |
|
|
|
Útbreiðsla |
|
|
|
|
|
|
|