Málsháttur
Oft vex laukur af litlu.
Sorbus matsumurana
Ættkvísl   Sorbus
     
Nafn   matsumurana
     
Höfundur   (Mak.) Koehne
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Japansreynir
     
Ætt   Rósaætt (Rosaceae).
     
Samheiti   Pyrus matsumurana Makino
     
Lífsform   Lauffellandi runni.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Hvítur.
     
Blómgunartími   Snemmsumars.
     
Hæð   2-3 m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Lauffellandi runni, allt að 3 m hár. Árssprotar brúnir. Brum keilulaga-egglaga, dökkrauðleit, bládöggvuð, allt að 20 mm með fáeinum rauðbrúnum hárum í oddinn og á jöðrum brumhlífarblaðanna.
     
Lýsing   Lauf um 15 sm löng, með 4-6 smáblaðapörum. Smáblöð 6,0 x 1,8 sm, aflöng til oddbaugótt, broddydd, tennt ofan miðju, yfirleitt nöbbótt á neðra borði. Blómin í hálfsveipum. Aldin rauð með bleikri slikju, döggvuð, eins og eplalaga en mjókka að leggnum, um 11-13 x 8,5-10 mm. Stílar um 2,0 mm, festir með millibili. Fræ ljósbrún, um 5 x 2,5 mm. Tiltölulega einsleit tegund. (2n=34). Gulir-rauðir haustlitir. (McAll)
     
Heimkynni   Japan (fjöll).
     
Jarðvegur   Frjór, vel framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   6
     
Heimildir   1, 15
     
Fjölgun   Sáning, sumargræðlingar.
     
Notkun/nytjar   Í þyrpingar, í blönduð runnabeð.
     
Reynsla   LA 941143 í T3-J05, gróðursett 2004 , kom sem nr. 940 frá Bayreuth HBU Ecol. 1992/93. Hefur verið sáð margoft en nær alltaf koma upp reyniviðir (S. aucuparia).
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is