Málsháttur
Eigi fellur tré við hið fyrsta högg.
Acaena microphylla
Ættkvísl   Acaena
     
Nafn   microphylla
     
Höfundur   Hook. f.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Hnetuþyrnilauf
     
Ætt   Rósaætt (Rosaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær jurt, stuundum sígræn.
     
Kjörlendi   Sól, hálfskuggi.
     
Blómlitur   Grænleitur, rauðleitur.
     
Blómgunartími   Júlí-ágúst.
     
Hæð   5-10 sm
     
Vaxtarhraði   Hraðvaxta.
     
 
Vaxtarlag   Fjölær jurt með jarðstöngla, allt að 4 sm. Lauf allt að 3 sm, með 9-15 smálauf. Axlablöð heilrend. Smálauf kringluleit, allt að 4 x 4 mm, græn eða koparlit og glansandi á efra borði, með 5-7 tennur, tennur snubbóttar, æðastrengir og tennur dökkar, verða bláleitar og lítið eitt dúnhærðar.
     
Lýsing   Blóm í allt að 20 blóma, hnöttóttum kolli, allt að 3 sm í þvermál. Bikarblöð 4, fræflar 2, frjóhnappar hvítir, stílar 2, hvítir. Aldin öfugkeilulaga hnetur, 2 x 2 mm, hárlausar, með 4 þyrna, allt að 1,5 sm, bleikir eða hárauðir, sléttir.
     
Heimkynni   Nýja Sjáland.
     
Jarðvegur   Sendinn, framræstur, fremur þurr.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   6
     
Heimildir   = 1, www.perennials.com/plants/acaena-microphylla.html
     
Fjölgun   Skipting, sánging, græðlingar.
     
Notkun/nytjar   Sem undirgróður, í steinhæðir. Hægt að klippa niður að vorinu.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum er til ein planta undir þessu nafni, sem sáð var til 2011 og gróðursett í beð 2015. Mest ræktuð erlendis af tegundundum ættkvíslarinnar vegna blaðfegurðarinnar.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is