Sigfús Daðason - Vængjasláttur
Akureyri
mjög skreytt
reynitrjám.

Sá sem gengi um bæinn
á septemberkvöldi:
dimmur skuggi innfjarðarins
fylgdi honum á aðra hönd hvar sem hann færi,
lifandi, kvikur!
Sálarspegill!

Heilagur lundur
rís í hæðir.
Og gangi maður í lundinn
er hann þar einn með sjálfum sér.

Það gustar um limið
og fuglarnir í björtum trjákrónunum
fælast skóhljóð einmanans
og hviðra með vængjaslætti
yfir höfði hans og úti í myrkrinu.

Og upp fyrir honum rennur þá: hvílík
sú dýrð sem einmananum hlotnast.



Spiraea salicifolia
Ættkvísl   Spiraea
     
Nafn   salicifolia
     
Höfundur   L.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Víðikvistur
     
Ætt   Rósaætt (Rosaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Lauffellandi runni.
     
Kjörlendi   Sól, (hálfskuggi).
     
Blómlitur   Bleikur.
     
Blómgunartími   Júlí-ágúst.
     
Hæð   1-2 m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Víðikvistur
Vaxtarlag   Lauffellandi runni, allt að 2 m hár og með mikið af rótarskotum. Greinarnar uppréttar, stífar, smádúnhærðar í fyrstu, móleitar til dökkbrúnar.
     
Lýsing   Lauf 4-8×1,25-2 sm, oddbaugótt til aflöng-lensulaga, odddregin til ydd, hvass- og þétttennt, ein- til tvísagtennt, fremur þunn, fölgræn ofan, enn fölgrænni neðan, hárlaus báðu megin. Laufleggir allt að 3 mm. Blóm allt að 8 mm í þvermál, mörg saman í mjóum, pýramídalaga, uppréttum, endastæðum, dálítið dúnhærðum skúf, sem er allt að 12 sm langur. Bikar dúnhærður, bikarblöð þríhyrnd-egglaga, upprétt, ydd, smádúnhærð. Fræflar eru allt að 2 sinnum lengri en krónublöðin. Eggleg hárlaus, hýði eru upprétt, næstum beinstrengjótt, hárlaus nema á saumum á neðri hliðinni, þar randhærð. Stíll langær, baksveigður.
     
Heimkynni   M & AM Evrópa til NA Asíu og Japans.
     
Jarðvegur   Meðalrakur, meðalfrjór.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   5
     
Heimildir   = 1
     
Fjölgun   Sáning, sumargræðlingar, rótarskot.
     
Notkun/nytjar   Í þyrpingar, í brekkur, sem undirgróður, í raðir.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum er til ein aðkeypt planta sem gróðursett var í beð 1991, skriðul og blómstrar árlega og ein planta, sem sáð var til 1993 og gróðursett í beð 1993, blómstrar árlega. Báðar þrífast vel. Meðalharðgerður-harðgerður runni, kelur lítið eitt, þolir vel að vera klipptur niður árlega.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Víðikvistur
Víðikvistur
Víðikvistur
Víðikvistur
Víðikvistur
Víðikvistur
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is