Snorri Hjartarson - Lyng

Gott er að leggjast í lyngið,
sjá lauf glóa, finna kvik
fjaðurmjúk atlot þess, fagna
í fegurð jarðar meðan rauð
og lág sólin lækkar
og lyngbreiðan er ilmgrænt haf
sem ber þig að hljóðri húmströnd
og hylur þig gleymsku.

Acaena novae-zelandiae
Ættkvísl   Acaena
     
Nafn   novae-zelandiae
     
Höfundur   T. Kirk.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Sandþyrnilauf
     
Ætt   Rósaætt (Rosaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Runnkennd, fjölær planta.
     
Kjörlendi   Sól, hálfskuggi.
     
Blómlitur   Græn-hvítur.
     
Blómgunartími   Ágúst-september.
     
Hæð   15 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Skríðandi, runnkenndur fjölæringur, allt að 15 sm eða lengri ef plantan er klifrandi. Greinarnar tiltölulega sverar, skýtur oft rótum á stöngulliðum og myndar nýjar plöntur, oft að hluta þaktar jarðvegi, vöxturinn virðist þéttur, myndar hvirfingu. Lauf allt að 11 sm með 9-15 smálauf. Axlablöð heilrend til 5-skipt. Smálauf aflöng, allt að 17 x 10 mm, skærgræn og smádúnhærð ofan, aðalleggur laufsins oft með rauða slikju, æðastrengir og jaðrar verða hárlausir á neðra borði og dúnhærðir, með 8-15 tennur, tennur með baksveigða jaðra, líta út fyrir að vera bogtennt.
     
Lýsing   Blómin græn-hvít, í 80-120 blóma hnöttóttum kolli, allt að 3,5 sm í þvermál. Bikarblöð 4, fræflar 2, sjaldan 3, frjóhnappar hvítir, stíll 1, hvítur. Aldin öfugkeilulaga, 4 x 2 mm, dúnhærð, þyrnar 4, með brodda, allt að 12 mm, rauðir, stundum með kræklótta hliðarþyrna á hlið aldinsins.
     
Heimkynni   Nýja Sjáland, SA Australía, Nýja Gínea.
     
Jarðvegur   Léttur, frjór, framræstur, meðalrakur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   6
     
Heimildir   = 1, davesgarden.com/guides/pf/go/31968/#b
     
Fjölgun   Skipting, sánging, græðlingar.
     
Notkun/nytjar   Sem undirgróður, sem þekja, í steinhæðir.
     
Reynsla   Ekki í Lystigarðinum 2015.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is