Þuríður Guðmundsdóttir - Rætur
Ég geng um skrúðgarða borgar
og blómin horfa á mig
litríkum framandi augum
og ilmur þeirra er alltaf nýr

Í fjarska situr fölblá gleymmérei
á fötum lítils barns

Því blágresi, holtasóley og steinbrjótur
voru blóm bernsku minnar

Og rætur þeirra
verða alltaf mínar

Laserpitium halleri
Ættkvísl   Laserpitium
     
Nafn   halleri
     
Höfundur   Crantz.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Fjallaský
     
Ætt   Sveipjurtaætt (Apiaceae).
     
Samheiti   (ekki í RHS ath Flore evrópa né IOPI)
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Hvítur.
     
Blómgunartími   Júlí-ágúst.
     
Hæð   - 100 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Fjölær jurt, 15-60 sm há, neðst með trefjabrúsk. Stönglar yfirleitt ekki meira en 5 mm breiðir, fínrákóttir. Lauf grágrænt, leggstutt, þríhyrnd að ummáli, 2-3 fjöðruð, ystu smáblöð fjaðurskipt, með um 3 mm löngum, bandlaga endaflipa.
     
Lýsing   Sveipur með 15-40 geisla. Reifablöð og smáreifablöð randhærð, Bllómin hvít. Aldin aflöng, 5-9 mm löng með breiðum vængjuðum hryggjum.
     
Heimkynni   Alpafjöll.
     
Jarðvegur   Þurrar, hlýjar brekkur, ekki kalkjarðvegur.
     
Sjúkdómar   Engir.
     
Harka  
     
Heimildir   = HS, https://www.infoflora.ch,
     
Fjölgun   Skipting að vori eða hausti, sáning að hausti.
     
Notkun/nytjar   Stakstæð planta, í skrautblómabeð með öðrum fjölæringum, í sumarbústaðaland.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum er til ein planta undir þessu nafni, sem sáð var til 2004 og gróðursett í beð 2006, þrífst vel. Þolir illa umplöntun eftir að plantan hefur náð fullri stærð. Þolir vel þurrk þar sem rætur eru mjög djúpstæðar.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is