Jón Helgason - úr ljóðinu Á Rauðsgili
Hugrökk teygist á háum legg
hvönnin fram yfir gljúfravegg,
dumbrauðu höfði um dægrin ljós
drúpir hin vota engjarós.


Leuzea rhapontica
Ættkvísl   Leuzea
     
Nafn   rhapontica
     
Höfundur   (L.) Holub.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Skarihúnn
     
Ætt   Körfublómaætt (Asteraceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Rauður eða purpura.
     
Blómgunartími   Júlí-ágúst.
     
Hæð   70-130 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Fjölær jurt, stönglar hvít-ullhærð.
     
Lýsing   Laufin hárlaus á efra borði, lóhærð neðan, grunnlauf 60 x 15 sm, grunnur hálf-hjartalaga, með legg. Stöngullauf heil eða lýrulaga, legglaus. Blómskipunin allt að 10 sm í þvermál, kúlulaga. Smáreifablöð aflöng til egglaga, bikarsneplar 1 sm breiðir, kringlóttir, brúnir. Smáblóm rauð eða purpura. Svifhárakrans allt að 2 sm.
     
Heimkynni   Alpafjöll.
     
Jarðvegur   Fremur þurr, magur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   6
     
Heimildir   = 1
     
Fjölgun   Skipting, sáning.
     
Notkun/nytjar   Sem stakstæð planta eða aftast í skrautblómabeð.
     
Reynsla   Skipta þarf plöntunni á nokkurra ára fresti.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is