Í morgunsárið - Ragna Sigurðardóttir
Í morgunsárið greiðir hún sér með trékambi. Hægt með föstum
strokum. Vöxturinn er svo mikill að hana kitlar í svörðinn. Hún
strýkur hendinni yfir gróðurinn. Finnur blóm springa út undir
fingurgómunum. Sóleyjar og baldursbrár. Hún leggur kambinn frá
sér. Fer út í garðinn og krýpur. Kippir upp kartöflugrösum. Rótar og
grefur með berum höndum. Djúpt ofan í moldinni finnur hún sætar og
safaríkar appelsínur.
Saxifraga sancta
Ættkvísl   Saxifraga
     
Nafn   sancta
     
Höfundur   Griseb.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Helgisteinbrjótur
     
Ætt   Steinbrjótsætt (Saxifragaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær, sígræn jurt.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Gulur.
     
Blómgunartími   Maí-júní.
     
Hæð   5-7 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Lík einisteinbrjót (S. juniperifolia) en laufin eru venjulega < 1 sm löng, jaðrar með löngum hárum sem líkjast tönnum nær alla leið upp.
     
Lýsing   Blómstöngull hárlaus, blómskipunin næstum kúlulaga eða flöt í toppinn. Fræflar ögn lengri eða um það bil jafnlangir og krónublöðin.
     
Heimkynni   NA Grikkland, NV Tyrkland.
     
Jarðvegur   Kalkríkur, fremur rýr, framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   7
     
Heimildir   1,2
     
Fjölgun   Skipting, sáning.
     
Notkun/nytjar   Í steinhæðir, í steinbeð.
     
Reynsla   Ekki í Lystigarðinum. Nokkuð harðgerð (ÓBG).
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is