Ólafur Jóhann Sigurðsson - Á vordegi
Grundin eignast gullinn fífil,
geislafingur hlýir strjúka
lambakóng með lítinn hnýfil,
lambagrasið rauða og mjúka.

Vappar tjaldur, vellir spói,
verpir í broki mýrispýta.
Bráðum kveikir fenjaflói
fífublysið mjallahvíta.

Bráðum mun í morgunstillu
meðan þokan kveður dranga
ljósberi hjá lágri syllu
lyfta kolli til að anga.

Blíða daga, bjartar nætur
bugðast á með tærum hyljum
eftir laut sem litlir fætur
lásu forðum berum iljum.


Trollius acaulis
Ættkvísl   Trollius
     
Nafn   acaulis
     
Höfundur   Lindl.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Fjallahnappur
     
Ætt   Ranunculaceae
     
Samheiti  
     
Lífsform   fjölær
     
Kjörlendi   sól, hálfskuggi
     
Blómlitur   gullgulur
     
Blómgunartími   júlí
     
Hæð   0.15-0.25m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Fjallahnappur
Vaxtarlag  
     
Lýsing   blómin stök á stöngulendum allt að 5cm í Þvermál með 5-10 gullnum bikarblöðum og 12-16 dökkgulum krónublöðum, laufblöðin eru mikið skert, fyrst í fimm breiða flipa sem hver um sig er með oddmjóum sepum
     
Heimkynni   Himalaja í 3000-4300m hæð
     
Jarðvegur   djúpur, frjór, meðalrakur
     
Sjúkdómar  
     
Harka   6
     
Heimildir   1
     
Fjölgun   skipting, haustsáning
     
Notkun/nytjar   steinhæð, kanta, fjölær beð
     
Reynsla   Þrífst prýðilega hér á landi
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Fjallahnappur
Fjallahnappur
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is