Þuríður Guðmundsdóttir - Rætur
Ég geng um skrúðgarða borgar
og blómin horfa á mig
litríkum framandi augum
og ilmur þeirra er alltaf nýr

Í fjarska situr fölblá gleymmérei
á fötum lítils barns

Því blágresi, holtasóley og steinbrjótur
voru blóm bernsku minnar

Og rætur þeirra
verða alltaf mínar

Acer tataricum
Ættkvísl   Acer
     
Nafn   tataricum
     
Höfundur   L.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Berghlynur
     
Ætt   Hlynsætt (Aceraceae)
     
Samheiti  
     
Lífsform   Runni - lítið tré
     
Kjörlendi   Sól
     
Blómlitur   Grænn
     
Blómgunartími   Vor
     
Hæð   5 - 10 m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Berghlynur
Vaxtarlag   Runni eða lítið tré, allt að 10 m hátt. Börkur rauðbrúnn til grábrúnn, sléttur. Greinar hárlausar, fölgrænar í fyrstu síðar með kalkhvítum rákum.
     
Lýsing   Brum fremur lítil. Grunnur bogadreginn eða næstum hjartalaga, jaðrar með óreglulegar, tvöfaldar tennur sem vita fram á við. Skærgræn, æðastrengir á neðra borði hærðir. Aldin með rauð og næstum alveg samsíða vængi. Hnotin sporvala og mjög æðótt.
     
Heimkynni   SA Evrópa til Íraks.
     
Jarðvegur   Frjór, vel framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   4
     
Heimildir   1, 2
     
Fjölgun   Sáning strax og fræin hafa náð fullum þroska eða eftir að þau hafa verið forkæld. Fræ í tvívængjuðum, hárlausum hnotum.
     
Notkun/nytjar   Stakstæð, í þyrpingar, í beð.
     
Reynsla   Þrífst þokkalega í Lystigarðinum, en kelur mismikið milli ára.
     
Yrki og undirteg.   A. tataricum var. torminaloides Pax. með þrísepótt blöð.
     
Útbreiðsla  
     
Berghlynur
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is