Jónas Hallgrímsson - Úr ljóðinu Dalvísa
Fífilbrekka! gróin grund!
grösug hlíð með berjalautum!
flóatetur! fífusund!
fífilbrekka! smáragrund!
yður hjá ég alla stund
uni best í sæld og þrautum;
fífilbrekka! gróin grund!
grösug hlíð með berjalautum!
Berberis sieboldii
Ættkvísl   Berberis
     
Nafn   sieboldii
     
Höfundur   Miq.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Japansbroddur
     
Ætt   Mítursætt (Berberidaceae)
     
Samheiti  
     
Lífsform   Runni
     
Kjörlendi   Sól
     
Blómlitur   Ljósgulur
     
Blómgunartími   Júní
     
Hæð   0,5-1 m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Þéttvaxinn runni, greinar gljáandi, yngri greinar rauðleitar, hárlausar, kantaðar.
     
Lýsing   Skyldur B. vulgaris. Lauffellandi runni allt að 1 m hár, þéttur, greinar glansandi, hárlausar, dálítið kantaðar. Lauf allt að 7×2,5 sm, tígul-egglaga, snubbótt, jaðrar þornhærðir, rauð á meðan þau eru ung, seinna skærgræn ofan, ljósari neðan, hárlaus. Blóm allt að 6 talsins í 3 sm löngum hálfsveip. Aldin hnöttótt, aflöng, dökkrauð.
     
Heimkynni   Japan.
     
Jarðvegur   Léttur, meðalfrjór, vel framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   Z5
     
Heimildir   = 1
     
Fjölgun   Haustsáning, sumargræðlingar
     
Notkun/nytjar   Stakstæðir, í raðir, í þyrpingar, í blönduð beð og víðar.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum eru til tvær plöntur sem sáð var til 1991 og 1997 og gróðursettar í beð 2000. Báðar hafa kalið dálítið árlega.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is