Vorið góða, grænt og hlýtt (Heinrich Heine, þýðing) Vorið góða, grænt og hlýtt,
græðir fjör um dalinn,
allt er nú sem orðið nýtt,
ærnar, kýr og smalinn.
Kveður í runni, kvakar í mó
kvikur þrastasöngur;
eins mig fýsir alltaf þó:
aftur að fara í göngur.
|
Ættkvísl |
|
Cotoneaster |
|
|
|
Nafn |
|
melanocarpus |
|
|
|
Höfundur |
|
Lodd., G. Lodd. & W. Lodd. |
|
|
|
Ssp./var |
|
|
|
|
|
Höfundur undirteg. |
|
|
|
|
|
Yrki form |
|
|
|
|
|
Höf. |
|
|
|
|
|
Íslenskt nafn |
|
Hrafnamispill |
|
|
|
Ætt |
|
Rósaætt (Rosaceae) |
|
|
|
Samheiti |
|
Cotoneaster niger (Wahlenb.) Fries |
|
|
|
Lífsform |
|
Lauffellandi runni |
|
|
|
Kjörlendi |
|
Sól eða hálfskuggi |
|
|
|
Blómlitur |
|
Rauður eða hvítur með rauðu |
|
|
|
Blómgunartími |
|
Vor-snemmsumars |
|
|
|
Hæð |
|
1-2 m (-5 m) |
|
|
|
Vaxtarhraði |
|
|
|
|
|
|
|
|
Vaxtarlag |
|
Lauffellandi runni, allt að 2 m hár, breiðvaxinn og útbreiddur. Smágreinar breiða úr sér eða er drúpandi, grá-hrokkinhærðar, seinna rauðhærð. Verður hvelfdur runni með aldrinum. Getur orðið allt að 5 m hár erlendis! |
|
|
|
Lýsing |
|
Lauf allt að 5 sm, oftast í 2 röðum, breiðoddbaugótt-aflöng, snubbótt til hvassydd, matt-dökk græn ofan, þétt grá-hrokkinhærð neðan, seinna næstum hárlaus. Blómin rauð eða hvít með rauðu, 2-12 í knippi. Krónublöð upprétt, fræflar 30. Aldin allt að 9 mm, egglag-hnöttótt, blásvört, kjarnar/fræ 2-3. |
|
|
|
Heimkynni |
|
A-Evrópa til V Asía, A Mongólía. |
|
|
|
Jarðvegur |
|
Sendinn eða grýttur leirborinn jarðvegur, hæfilega rakur. |
|
|
|
Sjúkdómar |
|
|
|
|
|
Harka |
|
5 |
|
|
|
Heimildir |
|
1, http://en.hortipedia.com, http://www.gardening.eu |
|
|
|
Fjölgun |
|
Haustsáning, sumargræðlingar. |
|
|
|
Notkun/nytjar |
|
Í þyrpingar, í raðir, í limgerði, sem stakstæður runni, í brekkur. |
|
|
|
Reynsla |
|
Í Lystigarðinum eru til nokkrar plöntur, ein sem sáð var til 1973 og gróðursett í beð 1983, önnur sem sáð var til 1978 og gróðursett í beð 1983, sú þriðja sem sáð var til 1983 og gróðursett í beð 1988, mjög falleg planta. Að lokum má nefna ein sem sáð var til 1988 og gróðursett í beð 1994. Hefur reynst mjög vel í Lystigarðinum (k:0-1).
|
|
|
|
Yrki og undirteg. |
|
Hvort C. niger eða C. melanocarpus er réttara er erfitt að átta sig á.
Látum það liggja á milli hluta í bili.
Cotoneater niger var. altaicus er einnig í ræktun (ekki í RHS) og jafnvel enn betri garðplanta - upprunalega frá Tianshan úr 2000 m hæð, (k 0) NB Þetta nafn hefur ekki verið staðfest enn sem komið er! Réttara nafn kannski C. altaicus.
Cotoneaster niger var. commixtus Schneid. með egglaga lauf, blóm 8-15 saman
Cotoneaster niger var. latiflorus (Lindl.) Schneid. með mjög stór blóm og blöð, blóm í stórum drjúpandi hálfsveipum 20-40 saman. |
|
|
|
Útbreiðsla |
|
|
|
|
|
|
|