Sigfús Daðason - Vængjasláttur
Akureyri
mjög skreytt
reynitrjám.

Sá sem gengi um bæinn
á septemberkvöldi:
dimmur skuggi innfjarðarins
fylgdi honum á aðra hönd hvar sem hann færi,
lifandi, kvikur!
Sálarspegill!

Heilagur lundur
rís í hæðir.
Og gangi maður í lundinn
er hann þar einn með sjálfum sér.

Það gustar um limið
og fuglarnir í björtum trjákrónunum
fælast skóhljóð einmanans
og hviðra með vængjaslætti
yfir höfði hans og úti í myrkrinu.

Og upp fyrir honum rennur þá: hvílík
sú dýrð sem einmananum hlotnast.



Lychnis x arkwrightii
Ættkvísl   Lychnis
     
Nafn   x arkwrightii
     
Höfundur   hort.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Surtarhetta
     
Ætt   Hjartagrasaætt (Caryophyllaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Appelsínu-rauðgulur.
     
Blómgunartími   Júlí-ágúst.
     
Hæð   30-40 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Garðablendingur sem myndar brúsk, með brún-purpura lauf.
     
Lýsing   Blómin appelsínugul-skarlatsrauð.
     
Heimkynni   Garðablendingur.
     
Jarðvegur   Jafnrakur, frjór, vel framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka  
     
Heimildir   http://www.bethchatto.co.uk/i-n/lychnis/lychnis-x-arkwrightii.htm
     
Fjölgun   Skipting, sáning, má fjölga með græðlingum síðsumars.
     
Notkun/nytjar   Í beð með fjölærum jurtum.
     
Reynsla  
     
Yrki og undirteg.   'Orange Gnome' - smátt yrki eða form af 'Vesuvius' aðeins um 20 sm á hæð. 'Vesuvius' - bronse litt lauf, appelsínugulrauð blóm.
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is