Hulda - Úr ljóðinu Sorg
Þar sem blóm í laufalautum
ljúfu máli saman tala,
sem að ást og angur skilja, ?
blágresi og burknar grannir,
brönugrös og músareyra,
ljósberi og lækjarstjarna,
litlar fjólur, æruprísar,
gullmura og gleym-mér-eigi, ?
vildi ég mega minnast þín.
Gentiana pneumonanthe
Ættkvísl   Gentiana
     
Nafn   pneumonanthe
     
Höfundur   L.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Bjölluvöndur
     
Ætt   Maríuvandarætt (Gentianaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Sól - hálfskuggi.
     
Blómlitur   Blár eða purpurablár.
     
Blómgunartími   Síðsumars-haust.
     
Hæð   30-40 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Bjölluvöndur
Vaxtarlag   Fjölæringur allt að 40 sm, nokkuð breytileg tegund. Stönglar uppréttir eða uppsveigðir, oftast ógreindir.
     
Lýsing   Lauf að 3,5 sm, bandlaga, aflöng eða egglensulaga í pörum upp eftir stönglum, legglaus, samvaxin við grunninn, snubbótt eða dálítið ydd, 3-tauga. Blóm 1-3 í blaðöxlum efstu laufa, legglaus eða leggstutt. Bikarpípa allt að 8 mm. Bikarflipar misstórir, band- til bandlensulaga, um það bil jafnlöng pípunni. Króna 4-5 cm, blá eða purpurablá með 5 grænar rákir á ytra borði, pípu-trektlaga, flipar egglaga, yddir. Ginleppar þríhyrndir, heilir. Fræflar samvaxnir. Aldinhýði legglöng, fræ ekki með væng.
     
Heimkynni   Víða í Evrópa, V Asía.
     
Jarðvegur   Djúpur, frjór, rakaheldinn, framræstur.
     
Sjúkdómar   Engir.
     
Harka   4
     
Heimildir   = 1,2
     
Fjölgun   Sáning að hausti, skipting.
     
Notkun/nytjar   Í steinhæðir, í fjölæringabeð, í kanta.
     
Reynsla   Hefur reynst vel í garðinum. Í E4-D10 frá 1994.
     
Yrki og undirteg.   'Alba' Er með hvít blóm. 'Styrian Blue' er allt að 45 sm há planta, kröftugri en aðaltegundin. blómin sterk djúpblá. var. depressa Bourg. Stönglar allt að 23 sm, útafliggjandi eða með uppsveigðir. Blómin djúpblá.
     
Útbreiðsla  
     
Bjölluvöndur
Bjölluvöndur
Bjölluvöndur
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is