Vorið góða, grænt og hlýtt (Heinrich Heine, þýðing)
Vorið góða, grænt og hlýtt,
græðir fjör um dalinn,
allt er nú sem orðið nýtt,
ærnar, kýr og smalinn.

Kveður í runni, kvakar í mó
kvikur þrastasöngur;
eins mig fýsir alltaf þó:
aftur að fara í göngur.
Leontopodium discolor
Ættkvísl   Leontopodium
     
Nafn   discolor
     
Höfundur   Beauverd
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Flekkuhíma
     
Ætt   Körfublómaætt (Asteraceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Gulhvítur/hvítgrá háblöð.
     
Blómgunartími   Júlí-ágúst.
     
Hæð   25 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Flekkuhíma
Vaxtarlag   Fjölær jurt, allt að 25 sm há.
     
Lýsing   Lauf allt að 6 sm, lensulaga eða band-lensulaga, skúmhærð eða hárlaus á efra borði, hvítdúnhærð á því neðra. Blómskipunin þétt hvít-dúnhærð ofan, minna hærð á neðra borði, stjarnan allt að 7 sm í þvermál. Körfur allt að 7 mm í þvermál, smáreifar dúnhærðar. Aldin hárlaus.
     
Heimkynni   Japan, SA Kína, Kórea.
     
Jarðvegur   Léttur, framræstur, magur, vel framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   6
     
Heimildir   = 1
     
Fjölgun   Skipting að vori, sáning.
     
Notkun/nytjar   Í beðjaðra, í steinhæðir.
     
Reynsla   Myndirnar eru teknar í Grasagarði Reykjavíkur. Þrífst vel í Grasagarði Reykjavíkur.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Flekkuhíma
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is