Sigfús Daðason - Vængjasláttur Akureyri
mjög skreytt
reynitrjám.
Sá sem gengi um bæinn
á septemberkvöldi:
dimmur skuggi innfjarðarins
fylgdi honum á aðra hönd hvar sem hann færi,
lifandi, kvikur!
Sálarspegill!
Heilagur lundur
rís í hæðir.
Og gangi maður í lundinn
er hann þar einn með sjálfum sér.
Það gustar um limið
og fuglarnir í björtum trjákrónunum
fælast skóhljóð einmanans
og hviðra með vængjaslætti
yfir höfði hans og úti í myrkrinu.
Og upp fyrir honum rennur þá: hvílík
sú dýrð sem einmananum hlotnast.
|
Ættkvísl |
|
Achillea |
|
|
|
Nafn |
|
clavennae |
|
|
|
Höfundur |
|
L. |
|
|
|
Ssp./var |
|
|
|
|
|
Höfundur undirteg. |
|
|
|
|
|
Yrki form |
|
|
|
|
|
Höf. |
|
|
|
|
|
Íslenskt nafn |
|
Silfurhumall |
|
|
|
Ætt |
|
Körfublómaætt (Asteraceae). |
|
|
|
Samheiti |
|
|
|
|
|
Lífsform |
|
Fjölær jurt. |
|
|
|
Kjörlendi |
|
Sól. |
|
|
|
Blómlitur |
|
Hvítur. |
|
|
|
Blómgunartími |
|
Ágúst. |
|
|
|
Hæð |
|
- 40 sm |
|
|
|
Vaxtarhraði |
|
|
|
|
|
|
|
|
Vaxtarlag |
|
Fjölær jurt, silki-lóhærð. Stönglar allt að 40 sm háir, ógreindir, uppréttir eða uppsveigðir. Laufin fjaðurskipt, flest heilrend, með fáa flipa, grunnlauf allt að 8 sm, með legg, stöngullauf 2 x 1 sm, legglaus. |
|
|
|
Lýsing |
|
Körfur 10-18 mm í þvermál, 6-25 í hálfsveip, blómskipunarleggur 5-20 mm, reifar 4-8 mm breiðar, nærreifar 3-5 mm, egglaga, með breiða, brúna jaðra, geislablóm 4-6 mm, egglaga, hvít. |
|
|
|
Heimkynni |
|
A Alpafjöll, V Balkanskagi. |
|
|
|
Jarðvegur |
|
Sendinn, framræstur, magur, fremur þurr. |
|
|
|
Sjúkdómar |
|
|
|
|
|
Harka |
|
3 |
|
|
|
Heimildir |
|
= 1 |
|
|
|
Fjölgun |
|
Skipting, sáning (plöntur upp af fræi eru breytilegar). |
|
|
|
Notkun/nytjar |
|
Í steinhæðir, í beð. |
|
|
|
Reynsla |
|
Harðgerð-meðalharðgerð planta, lítt reynd hérlendis enn sem komið er. Ekki í Lystigarðinum 2015. |
|
|
|
Yrki og undirteg. |
|
|
|
|
|
Útbreiðsla |
|
|
|
|
|
|
|