Hulda - Úr ljóðinu Sorg
Þar sem blóm í laufalautum
ljúfu máli saman tala,
sem að ást og angur skilja, ?
blágresi og burknar grannir,
brönugrös og músareyra,
ljósberi og lækjarstjarna,
litlar fjólur, æruprísar,
gullmura og gleym-mér-eigi, ?
vildi ég mega minnast þín.
Salix viminalis
Ættkvísl   Salix
     
Nafn   viminalis
     
Höfundur   L.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Körfuvíðir
     
Ætt   Víðiætt (Salicaceae).
     
Samheiti   Salix rossica Nasarow
     
Lífsform   Lauffellandi runni.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Grænleitur, frjóhnappar gulir.
     
Blómgunartími   Snemma vors.
     
Hæð   4-6 m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Körfuvíðir
Vaxtarlag   Lauffellandi runni, allt að 6 m hár eða hærri. Ársprotar langir, beinir, sveigjanlegir, grá-ullhærðir í fyrstu en verða fljótt hárlausir, ólífubrúnir til gulbrúnir. Brum egglaga, verða hárlaus, gul rauð-brún.
     
Lýsing   Lauf 10-18 x 0,5-2 sm, bandlaga, langydd, græn og dálítið dúnhærð á efra borði, silurlit, þétt silkihærð á neðra borði, jaðrar uppundnir, stundum bylgjótt. Blaðleggir allt að 1 sm, axlablöð bandlaga 10 x 2 mm, ekki til staðar á litlum greinum. Reklar koma fyrir laufgun, næstum legglausir, Stoðblöð reklanna smá, rekilhreistur öfugegglaga, svartbrún. Fræflar 2, ekki samvaxnir, allt að 1 sm. Eggleg hærð, stíllinn hálf lengd egglagsins.
     
Heimkynni   Evrópa - NV Asía.
     
Jarðvegur   Frjór, djúpur, rakaheldinn.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   4
     
Heimildir   = 1, www.britishhardwood.co.uk/salix-viminalis-common-osier-willow/174/
     
Fjölgun   Sumar- og vetrargræðlingar, fræi sáð um leið og það hefur þroskast.
     
Notkun/nytjar   Í þyrpingar, í raðir, sem stakstæður runni.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum eru til nokkrar plöntur undir þessu nafni, tvær gamlar sem kala lítið eða ekkert, önnur sem kom sem græðlingur 1978, lítið eða ekkert kal og ein planta sem kom sem græðlingur úr Síberíusöfnun (SÍB-10-04), kal 3-1,5. Hefur verið lengi í ræktun bæði hér í garðinum og víðar um land. Vex vel en kelur mismikið á milli ára, mjög mikið suma vetur.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Körfuvíðir
Körfuvíðir
Körfuvíðir
Körfuvíðir
Körfuvíðir
Körfuvíðir
Körfuvíðir
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is