Hulda - Úr ljóðinu Sorg
Þar sem blóm í laufalautum
ljúfu máli saman tala,
sem að ást og angur skilja, ?
blágresi og burknar grannir,
brönugrös og músareyra,
ljósberi og lækjarstjarna,
litlar fjólur, æruprísar,
gullmura og gleym-mér-eigi, ?
vildi ég mega minnast þín.
Spiraea densiflora
Ættkvísl   Spiraea
     
Nafn   densiflora
     
Höfundur   Nutt. ex Rydb.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Dreyrakvistur
     
Ætt   Rósaætt (Rosaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Lauffellandi runni.
     
Kjörlendi   Sól (hálfskuggi).
     
Blómlitur   Bleikur.
     
Blómgunartími   Júlí - ágúst.
     
Hæð   -60 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Dreyrakvistur
Vaxtarlag   Lauffellandi runni, allt að 60 sm hár, þéttgreinóttur með uppsveigðar greinar, lítið eitt skriðull. Árssprotar hárlausir og blöðóttir. Smágreinar sívalar, rauðbrúnar og hárlausar.
     
Lýsing   Laufin 2-4 sm, oddbaugótt, bogadregin til beggja enda, bogtennt og sagtennt við oddinn, ljósgrænni á neðra borði, laufleggir allt að 3 mm langir. Blómin bleik, mörg saman í 4 sm breiðum hálfsveipum, aðalblómskipunarleggur hárlaus. Bikarpípa allt að 2,5 mm í þvermál, hárlaus, bikarblöð 1 mm, egglaga, snubbótt, upprétt eða skástæð, krónublöð 1,5 mm löng. Fræhulstur 2,5 mm, beinstrengjótt, hárlaus, glansandi.
     
Heimkynni   NV Bandaríkin.
     
Jarðvegur   meðalrakur, meðalfrjór.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   6
     
Heimildir   = 1
     
Fjölgun   Sumargræðlingar, rótskeyttar greinar, sáning.
     
Notkun/nytjar   Í steinhæðir, í kanta, í blönduð runnabeð, í þyrpingar.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum eru til nokkrar plöntur sem sáð var 1991, hafa kalið flest ár og blómstrað, (sumar hafa drepist). Svo er til ein planta, sem sáð var til 1992, blómstrar árlega og ein aðkeypt planta frá 1999, sem blómstrar líka árlega. Í Lystigarðinum eru líka til tvær plöntur undir nafninu S. densiflora ssp. densiflora sem sáð var til 1994, runninn er fremur hár og blómstrar. Engar upplýsingar um kal. Hefur reynst vel bæði norðan og sunnanlands. Fyrst reyndur í Lystigarðinum 1980 (H. Sig. af fræi frá Cary Arboretum)
     
Yrki og undirteg.   Spiraea densiflora ssp. splendens - með enn dekkri blóm, blöðin egglaga til sporlensulga, ydd eog sagtennt eða tvísagtennt og tennur langyddar, verður allt að 1,2 m á hæð
     
Útbreiðsla  
     
Dreyrakvistur
Dreyrakvistur
Dreyrakvistur
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is