Jón Helgason - úr ljóðinu Á Rauðsgili
Hugrökk teygist á háum legg
hvönnin fram yfir gljúfravegg,
dumbrauðu höfði um dægrin ljós
drúpir hin vota engjarós.


Lonicera caprifolium
Ættkvísl   Lonicera
     
Nafn   caprifolium
     
Höfundur   L.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Vaftoppur
     
Ætt   Geitblaðsætt (Caprifoliaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Lauffellandi klifurrunni.
     
Kjörlendi   Sól, hálfskuggi, (skuggi).
     
Blómlitur   Gulhvítur með bleika slikju.
     
Blómgunartími   Júní-júlí.
     
Hæð   -4 m (-6m langur).
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Lauffellandi, klifrandi runni, sem verður allt að 6 m hár.
     
Lýsing   Smágreinar næstum hárlausar. Neðstu laufin leggstutt, efstu laufin legglaus, allt að 10 × 5 sm, öfugegglaga til oddbaugótt, oddur bogadregin, grunnur langyddur, næstum hárlaus, bláleit, einkum á neðra borði, blágræn á neðra borði, endalaufin samvaxin. Blómin gulhvít með bleika slikju, ilmandi, í 4-10 blóma, legglausum krönsum í öxlum þriggja efstu laufparanna Krónan með tvær varir, efri vörin upprétt til baksveigð, 4-flipótt, allt að 5 sm, pípan grönn. Berin appelsínurauð.
     
Heimkynni   Evrópa, V Asía.
     
Jarðvegur   Fremur frjór, meðalrakur.
     
Sjúkdómar   Stundum með blaðlús.
     
Harka   5
     
Heimildir   = 1
     
Fjölgun   Vetrar- eða sumargræðlingar, sáning, sveiggræðsla.
     
Notkun/nytjar   Þyrpingar, stakstæð, klifurplanta á hús eða sv.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum er til ein planta undir þessu nafni, sem sáð var til 2001 og gróðursett í beð 2004, þrífst vel, kelur lítið. ---- Meðalharðgerður. Þarf grind til að klifra upp eftir. Nægjusöm tegund.
     
Yrki og undirteg.   ‘Pauciflora’ krónupípan allt að 3 sm, purpura til rósbleik utan, móhvít innan. ----- ‘Praecox’ lauf grágræn, blóm rjómalit, oft með ljósrauða slikju, verða seinna gul, blómstrar snemma.
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is