Hulda - Úr ljóðinu Sorg
Þar sem blóm í laufalautum
ljúfu máli saman tala,
sem að ást og angur skilja, ?
blágresi og burknar grannir,
brönugrös og músareyra,
ljósberi og lækjarstjarna,
litlar fjólur, æruprísar,
gullmura og gleym-mér-eigi, ?
vildi ég mega minnast þín.
Betula pendula 'Gracilis'
Ættkvísl   Betula
     
Nafn   pendula
     
Höfundur   Roth.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form   'Gracilis'
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Skessubjörk (vörtubirki)
     
Ætt   Bjarkarætt (Betulaceae)
     
Samheiti  
     
Lífsform   Lauffellandi tré.
     
Kjörlendi   Sól og skjól
     
Blómlitur   Grænleitur
     
Blómgunartími   Vor
     
Hæð   1,5-2,5 m
     
Vaxtarhraði   Meðalhraðvaxta
     
 
Vaxtarlag   Lauffellandi tré, sem verður 12-20 m hátt og 6-9 m breitt, egglaga-pýramídalaga þegar það er ungt, verður meira hvelft þegar það eldist, er með glæsilegar bogadregnar greinar, fallega hangandi. Þessi norðlægu evrópsku og asísku tré eru með eru með hvítan börk sem flagnar í ræmur/næfra.
     
Lýsing   Lauf djúpskert, blúndulauf. Litlir grænleitir reklar koma á vorin og eru mjög áberandi. Blómin falleg, græn, aldin svört. Lauf glansandi, ljósgræn að vorinu, dökkgræn að sumrinu, ljósgul, gulgræn að haustinu. Laufin eru fínleg og enn djúpflipóttari en á dalabjörk (dalabirki).
     
Heimkynni   Yrki.
     
Jarðvegur   Jafnrakur, frjór jarðvegur, sýrustig skiptir ekki máli.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   2
     
Heimildir   = 1, http://www.connonnursiers.com,http://www.learn2grow.com
     
Fjölgun   Fjölgað með ágræðslu á ilmbjörk.
     
Notkun/nytjar   Í þyrpingar, sem stakstæð tré, í blönduð beð, á stórar flatir, í skjólbelti, sem skuggatré, sem götutré.
     
Reynsla   Er ekki í Lystigarðinum 2013. Ætti að þrífast þolanlega á allra bestu stöðum í sól og góðu skjóli, ekki vitað hvort það hefur verið reynt í görðum hérlendis.
     
Yrki og undirteg.   Það eru til mörg yrki af vörtubirki svo sem 'Monte' með purpuralit lauf og hið dvergvaxna 'Trost'. 'Gracilis' og 'Youngii' eru ágæt tré með hangandi greinar.
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is