Þuríður Guðmundsdóttir - Rætur
Ég geng um skrúðgarða borgar
og blómin horfa á mig
litríkum framandi augum
og ilmur þeirra er alltaf nýr

Í fjarska situr fölblá gleymmérei
á fötum lítils barns

Því blágresi, holtasóley og steinbrjótur
voru blóm bernsku minnar

Og rætur þeirra
verða alltaf mínar

Sedum anglicum
Ættkvísl   Sedum
     
Nafn   anglicum
     
Höfundur   Huds.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Bretahnoðri
     
Ætt   Hnoðraætt (Crassulaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Hvítur-bleikur.
     
Blómgunartími   Ágúst.
     
Hæð   10-15 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Bretahnoðri
Vaxtarlag   Myndar gisna mottu, er sígrænn, stönglar grannir, skríða, rótskeyttir.
     
Lýsing   Blöðin 3-6 mm, gagnstæð, mjög þétt, bogadregin í þversnið, egglaga-kringlótt, rauðmenguð. Blóm í 2-3 greina, fáblóma blómskipan, blómin stuttstilkuð, krónublöð 5, útbreidd, fræflar 10, purpuralitir frjóhnappar, fræhýði útbreidd, bleik-rauð
     
Heimkynni   V Evrópa.
     
Jarðvegur   Léttur, framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   6
     
Heimildir   = 1
     
Fjölgun   Skipting, sáning.
     
Notkun/nytjar   Í steinhæðir, í kanta, í ker.
     
Reynsla  
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Bretahnoðri
Bretahnoðri
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is