Í morgunsárið - Ragna Sigurðardóttir
Í morgunsárið greiðir hún sér með trékambi. Hægt með föstum
strokum. Vöxturinn er svo mikill að hana kitlar í svörðinn. Hún
strýkur hendinni yfir gróðurinn. Finnur blóm springa út undir
fingurgómunum. Sóleyjar og baldursbrár. Hún leggur kambinn frá
sér. Fer út í garðinn og krýpur. Kippir upp kartöflugrösum. Rótar og
grefur með berum höndum. Djúpt ofan í moldinni finnur hún sætar og
safaríkar appelsínur.
Soldanella alpina
Ættkvísl   Soldanella
     
Nafn   alpina
     
Höfundur   L.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Alpakögurklukka
     
Ætt   Maríulykilsætt (Primulaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Sól, (hálfskuggi).
     
Blómlitur   Fjólublár-bláfjólublár.
     
Blómgunartími   Snemmsumars.
     
Hæð   10-15 sm
     
Vaxtarhraði   Hægvaxta.
     
 
Alpakögurklukka
Vaxtarlag   Lágvaxin jurt, leggur ungra laufa með legglausa kirtla, verður síðar næsum hárlaus.
     
Lýsing   Lauf allt að 4 sm í þvermál, dökkgræn á efra og neðra borði, kringlótt til nýrlaga, grunnskerðing laufa breið og grunn eða engin. Blómstönglar 5-15 sm, 2-4 blóma. Krónublöð 8-13 mm, kolfin til hálfs eða meir, fjólublá til bláfjólublá.
     
Heimkynni   Fjöll M & S Evrópu (Pyreneafjöll & Alpafjöll).
     
Jarðvegur   Frjór, vel framræstur, nóg vatn yfir veturinn, á svölum stað, ögn súr.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   6
     
Heimildir   1,2
     
Fjölgun   Skipting síðsumars, sáning.
     
Notkun/nytjar   Í steinhæðir, í ker, í kanta.
     
Reynsla   Þrífst vel í Lystigarðinum.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Alpakögurklukka
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is