Jón Thoroddsen - Barmahlíð

Hlíðin mín fríða
hjalla meður græna
og blágresið blíða
og berjalautu væna,
á þér ástaraugu
ungur réð ég festa,
blómmóðir bezta!

Sá ég sól roða
síð um þína hjalla
og birtu boða
brúnum snemma fjalla.
Skuggi skauzt úr lautu,
skreið und gráa steina,
leitandi leyna.

Blómmóðir bezta,
beztu jarðargæða
gaf þér fjöld flesta
faðir mildur hæða.
Hver mun svo, er sér þig,
sálar þjáður dofa,
að gleymi guð lofa?

Hlíð, þér um haga
hlýr æ blási andi,
döggvi vordaga
dögg þig sífrjóvgandi!
Um þig aldrei næði,
af þér svo að kali,
vetur vindsvali!


Cerastium arvense
Ættkvísl   Cerastium
     
Nafn   arvense
     
Höfundur   L.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Mjallareyra
     
Ætt   Caryophyllaceae
     
Samheiti  
     
Lífsform   fjölær
     
Kjörlendi   sól
     
Blómlitur   hvítur
     
Blómgunartími   vor-sumar
     
Hæð   0.2-0.3m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Myndar gisnar breiður, öll plantan kirtilhærð með marga jarðlæga laufótta sprota sem skjóta rótum á liðunum og við axlarblöðin.
     
Lýsing   Blómstönglar uppsveigðir allt að 30 sm. Lauf allt að 2 sm, bandlaga til lensulaga ? oddbaugótt. Blómskipun gisin, fá blóm með langa kirtilhærða blómleggi og stór hvít blóm. Bikarblöð 5-8 mm aflönglensulaga. Krónublöð 1-1,5 sm, öfugegglaga, sýld, Fræhýði u.þ.b. 10 mm, standa fram úr bikarnum.
     
Heimkynni   Tempraða beltið Norðurhveli
     
Jarðvegur   léttur, sendinn, framræstur
     
Sjúkdómar  
     
Harka   H 2
     
Heimildir   2
     
Fjölgun   Breytileg tegund, góð þekjuplanta á þurran, rýran jarðveg en sjaldan ræktuð.
     
Notkun/nytjar   steinhæðir, beð, kanta, hleðslur, þekja
     
Reynsla   Breytileg tegund, góð þekjuplanta á þurran, rýran jarðveg en sjaldan ræktuð.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is