Sigfús Daðason - Vængjasláttur Akureyri
mjög skreytt
reynitrjám.
Sá sem gengi um bæinn
á septemberkvöldi:
dimmur skuggi innfjarðarins
fylgdi honum á aðra hönd hvar sem hann færi,
lifandi, kvikur!
Sálarspegill!
Heilagur lundur
rís í hæðir.
Og gangi maður í lundinn
er hann þar einn með sjálfum sér.
Það gustar um limið
og fuglarnir í björtum trjákrónunum
fælast skóhljóð einmanans
og hviðra með vængjaslætti
yfir höfði hans og úti í myrkrinu.
Og upp fyrir honum rennur þá: hvílík
sú dýrð sem einmananum hlotnast.
|
Ættkvísl |
|
Erigeron |
|
|
|
Nafn |
|
glaucus |
|
|
|
Höfundur |
|
Ker-Gawler. |
|
|
|
Ssp./var |
|
|
|
|
|
Höfundur undirteg. |
|
|
|
|
|
Yrki form |
|
|
|
|
|
Höf. |
|
|
|
|
|
Íslenskt nafn |
|
Kambakobbi |
|
|
|
Ætt |
|
Körfublómaætt (Asteraceae). |
|
|
|
Samheiti |
|
|
|
|
|
Lífsform |
|
Fjölær jurt. |
|
|
|
Kjörlendi |
|
Sól. |
|
|
|
Blómlitur |
|
Ljósfjólublár-hvítur/gulur hvirfill. |
|
|
|
Blómgunartími |
|
Síðsumars-haust. |
|
|
|
Hæð |
|
30-40 sm |
|
|
|
Vaxtarhraði |
|
|
|
|
|
|
|
|
Vaxtarlag |
|
Þýfður fjölæringur með kröftuga rótarstöngla. Blómstönglar 5-50 sm, oftast útstæðir við grunninn en sveigjast svo upp á við, þétthærðir með útstæð hár. |
|
|
|
Lýsing |
|
Lauf þykk og safamikil, þau neðri stór og áberandi, öfugegglaga til spaðalaga. Þau efri smá, lensulaga, öll hárlaus eða kirtilhærð, randhærð. Körfur 1-15 í hálfsveip, 1,5-3,5 í þvermál. Tungukrýndu blómin u.þ.b. 100, 1-2 mm breið, ljósfjólublá til hvít. Svifkrans með 20-30 brúnleit til rauðleit þornhár, ytri hárakrans með stutt hár. Aldin oftast 4-tauga.
|
|
|
|
Heimkynni |
|
V N-Ameríka. |
|
|
|
Jarðvegur |
|
Léttur, vel framræstur, meðalrakur. |
|
|
|
Sjúkdómar |
|
|
|
|
|
Harka |
|
H4 |
|
|
|
Heimildir |
|
2 |
|
|
|
Fjölgun |
|
Skipting, sáning. |
|
|
|
Notkun/nytjar |
|
Í steinhæðir, í fjölæringabeð. |
|
|
|
Reynsla |
|
Lítt reynd. Í uppeldi 2005, ekki lengur á lífi 2014. |
|
|
|
Yrki og undirteg. |
|
|
|
|
|
Útbreiðsla |
|
|
|
|
|
|
|