Páll Ólafsson, Ljóðið Vetrarkveðja Margt er gott að muna þér
þó mér þú fyndist langur.
Farðu vel, þú færðir mér
fögnuð bæði og angur.
Þó að nísti frostið fast
og fölni grænir hagar
eftir þetta kuldakast
koma betri dagar.
|
Ættkvísl |
|
Asyneuma |
|
|
|
Nafn |
|
canescens |
|
|
|
Höfundur |
|
(Waldst. & Kit.) Griseb. & Schenck |
|
|
|
Ssp./var |
|
|
|
|
|
Höfundur undirteg. |
|
|
|
|
|
Yrki form |
|
|
|
|
|
Höf. |
|
|
|
|
|
Íslenskt nafn |
|
Steppuklukka |
|
|
|
Ætt |
|
Campanulaceae |
|
|
|
Samheiti |
|
Phyteuma canescens Waldst. & Kit.; Campanula canescens (Waldst. & Kit.) Roth. |
|
|
|
Lífsform |
|
fjölær |
|
|
|
Kjörlendi |
|
sól |
|
|
|
Blómlitur |
|
föl-bláfjólublár |
|
|
|
Blómgunartími |
|
síðsumars - haust |
|
|
|
Hæð |
|
0.6-1m |
|
|
|
Vaxtarhraði |
|
|
|
|
|
|
|
|
Vaxtarlag |
|
Uppréttur fjölæringur allt að 1 m, með trefjóttan, fölbrúnan, greinóttan jarðstöngul. Blómstönglar beinir, sívalir, rákóttir, grófhærðir, ógreindir og laufóttir. |
|
|
|
Lýsing |
|
Grunnlaufin allt að 2,5 sm, stilklaus, egglaga-lensulaga. Stöngullauf allt að 6 sm, með gróf, hvít hár, stakstæð, oddbaugótt-egglaga, bogtennt en verða ± heilrend, mörg saman neðantil á stilknum. Efstu stöngullaufin leggjuð, minnka snögglega. Blómskipunin er langur skúfur, sem minnir á ax. Blómgast í blaðöxlum, blóm 2-4 saman, upprétt fyrir og eftir blómgun, leggstutt. Bikarflipar heilrendir, bandlaga, yddir. Krónan allt að 9 mm, stjörnulaga, klofin næstum að grunni, föl-bláfjólublá til lillalit. Fliparnir borðalaga, útstæðir til baksveigðir. Stíll næstum út úr blóminu. Hýði sporvala, íflöt, opnast með götum efst eða um miðjuna.
Blómgast í ágúst-september.
|
|
|
|
Heimkynni |
|
SA Evrópa til Kína |
|
|
|
Jarðvegur |
|
léttur, frjór, framræstur, djúpur, rakaheldinn |
|
|
|
Sjúkdómar |
|
|
|
|
|
Harka |
|
H5 |
|
|
|
Heimildir |
|
2 |
|
|
|
Fjölgun |
|
sáning, skipting, græðlingar að vori (grunn) |
|
|
|
Notkun/nytjar |
|
fjölær beð, baka til í stærri steinhæðir |
|
|
|
Reynsla |
|
Hefur lifað á beði (N9) í ein fimm ár samfellt og lofar góðu. |
|
|
|
Yrki og undirteg. |
|
|
|
|
|
Útbreiðsla |
|
|
|
|
|
|
|