Málsháttur
Lengi býr að fyrstu gerð.
Campanula alpina
Ættkvísl   Campanula
     
Nafn   alpina
     
Höfundur   Jacq.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Fellaklukka
     
Ætt   Campanulaceae (Bláklukkuætt)
     
Samheiti   Campanula orbelica Pancic
     
Lífsform   Fjölær jurt
     
Kjörlendi   Sól, léttur skuggi
     
Blómlitur   Föllilla
     
Blómgunartími   Síðsumars
     
Hæð   0.05-0.15m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Uppréttur, lítill, þýfður, skammlífur fjölæringur með einn rótarstöngul. Blómstönglar uppréttir, stinnir, ógreindir eða greinóttir, allt að 15 sm.
     
Lýsing   Flest laufin mynda hvirfingu við jörð. Grunnlaufin eru allt að 5 sm, band- til lensulaga, heilrend, fíntennt eða bogtennt, hárlaus til dúnhærð. Blómin legglöng, í strjálblóma, pýramídalaga blómskipun, hálfdrúpandi eða hangandi. Þau eru með lítt áberandi, hærðan aukabikar. Króna allt að 2 sm, bjöllulaga, hærð, föllilla til gráfjólublá, flipar stuttir. Hýði opnast með götum við grunninn. Skyld skeggklukku (Campanula barbata) en miklu minni. Blómgast í ágúst-september
     
Heimkynni   Alpafjöll, Karpatafjöll og fjöll á Balkanskaga
     
Jarðvegur   Léttur, framræstur, þolir ekki kalk.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   H3
     
Heimildir   1,2, HS
     
Fjölgun   Sáning, skipting, græðlingar
     
Notkun/nytjar   Steinhæðir, framan til í fjölær beð
     
Reynsla   Hefur reynst vel í garðinum.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is