Páll Ólafsson, Ljóðið Vetrarkveðja Margt er gott að muna þér
þó mér þú fyndist langur.
Farðu vel, þú færðir mér
fögnuð bæði og angur.
Þó að nísti frostið fast
og fölni grænir hagar
eftir þetta kuldakast
koma betri dagar.
|
Ættkvísl |
|
Sorbus |
|
|
|
Nafn |
|
forrestii |
|
|
|
Höfundur |
|
McAll. & Gillham |
|
|
|
Ssp./var |
|
|
|
|
|
Höfundur undirteg. |
|
|
|
|
|
Yrki form |
|
|
|
|
|
Höf. |
|
|
|
|
|
Íslenskt nafn |
|
Snæreynir |
|
|
|
Ætt |
|
Rósaætt (Rosaceae). |
|
|
|
Samheiti |
|
|
|
|
|
Lífsform |
|
Lauffellandi runni eða lítið tré. |
|
|
|
Kjörlendi |
|
Sól. |
|
|
|
Blómlitur |
|
Hvítur. |
|
|
|
Blómgunartími |
|
Snemmsumars. |
|
|
|
Hæð |
|
4-8(-12) m |
|
|
|
Vaxtarhraði |
|
|
|
|
|
|
|
|
Vaxtarlag |
|
Lítið tré, allt að 12 m hátt í heimkynnum sínum, en er líklega lægra í ræktun. Vex hérlendis sem runni en þó með einstaka undantekningum. Brumin keilulaga-egglaga, djúp rauð, hvíthærð í toppinn og á jöðrum brumhlífa. |
|
|
|
Lýsing |
|
Laufin allt að 20 sm á lengd, með 7-9 blaðpörum smálauf sem eru álíka stór og sem eru með töluverðu millibili. Hvert smáblað allt að 40 mm, ekki nöbbótt á neðra borði. Aldin að 8 x 9,5 mm, hvít með bleikri slikju á bikarnum, harðari en aldin á reynivið en mýkri en aðrar tegundir deildarinnar. Frævur 3-4(-5). Stílar um 2 mm, eru ekki samvaxnir í toppinn. Fjórlitna smátegund sem fjölgar sér með geldæxlun. (2n=68).
|
|
|
|
Heimkynni |
|
Kína, NV Yunnan, Bei-ma-shan. |
|
|
|
Jarðvegur |
|
Frjór, framræstur. |
|
|
|
Sjúkdómar |
|
|
|
|
|
Harka |
|
|
|
|
|
Heimildir |
|
15 |
|
|
|
Fjölgun |
|
Sáning, sumargræðlingar. |
|
|
|
Notkun/nytjar |
|
Í skrautbeð. Vex í blönduðu runnlendi í heimkynnum sínum. |
|
|
|
Reynsla |
|
LA 86740 í J7-B31, gróðursett 1991 er besta númerið, kom sem nr. 184 frá Washington U Park Arb 1986. Hefur fengið einkunnina 0 í kali yfir 10 ára tímabil, þ. e. aldrei kalið neitt.
Önnur númer eru ekki alveg eins góð, kelur gjarnan aðeins fyrstu árin en lítt eða ekki eftir það.
|
|
|
|
Yrki og undirteg. |
|
|
|
|
|
Útbreiðsla |
|
|
|
|
|
|
|