Sigfús Daðason - Vængjasláttur
Akureyri
mjög skreytt
reynitrjám.

Sá sem gengi um bæinn
á septemberkvöldi:
dimmur skuggi innfjarðarins
fylgdi honum á aðra hönd hvar sem hann færi,
lifandi, kvikur!
Sálarspegill!

Heilagur lundur
rís í hæðir.
Og gangi maður í lundinn
er hann þar einn með sjálfum sér.

Það gustar um limið
og fuglarnir í björtum trjákrónunum
fælast skóhljóð einmanans
og hviðra með vængjaslætti
yfir höfði hans og úti í myrkrinu.

Og upp fyrir honum rennur þá: hvílík
sú dýrð sem einmananum hlotnast.



Asparagus officinalis
Ættkvísl   Asparagus
     
Nafn   officinalis
     
Höfundur   L.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Spergill
     
Ætt   Liljuætt (Liliaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Gulgrænn.
     
Blómgunartími   Júlí.
     
Hæð   40-80 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Spergill
Vaxtarlag   Blómstönglar allt að 1 m háir, jurtkendir, uppréttir, stönglar og greinar mjúkar, greinar grænar. Hreisturlauf með lítinn, harðan grunn sem er ekki eins og þyrnar. Laufstönglar (cladodes) 1-3 sm x 0,1-0,2 mm, þráðlaga, 2-4-hyrndir í þverskurð, mjúkir, en eldrihvasshyrndir, grænir eða dökkgrænir, 15-40 eða fleiri saman í knippi á liðunum.
     
Lýsing   Blóm einkynja, 1-3 saman innanum laufstönglana. Blómleggir bugðóttir, lengri en laufstönglarnir sem þeir vaxa hjá, með hné rétt neðan við blómið. Blómhlíf 6-8 mm. Ber 1-1,6 sm, rauð með 2-6 fræjum.
     
Heimkynni   Miðjarðarhafssvæðið.
     
Jarðvegur   Léttur, frjór.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   4
     
Heimildir   = 1, 2
     
Fjölgun   Skipting, sáning.
     
Notkun/nytjar   Í skrautblómabeð, til matar, til afskurðar.
     
Reynsla   Meðalharðgerð planta sem hefur þrifist nokkuð vel í Lystigarðinum, gömul plantan síðan um 1956. Kemur seint upp, um 10. júní.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Spergill
Spergill
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is