Snorri Hjartarson - Lyng

Gott er að leggjast í lyngið,
sjá lauf glóa, finna kvik
fjaðurmjúk atlot þess, fagna
í fegurð jarðar meðan rauð
og lág sólin lækkar
og lyngbreiðan er ilmgrænt haf
sem ber þig að hljóðri húmströnd
og hylur þig gleymsku.

Ligularia dentata 'Othello'
Ættkvísl   Ligularia
     
Nafn   dentata
     
Höfundur   (A. Gray) Hara
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form   'Othello'
     
Höf.   (around 1915)
     
Íslenskt nafn   Meyjarskjöldur
     
Ætt   Körfublómaætt (Asteraceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Dökk-appelsínugulur.
     
Blómgunartími   Ágúst-september.
     
Hæð   - 120 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Meyjarskjöldur
Vaxtarlag   Fjölær jurt allt að 120 sm hátt yrki, laufin kringuleit með langan legg, dökkpurpura.
     
Lýsing   Blómin dökk-appelsínugul.
     
Heimkynni   Yrki
     
Jarðvegur   Djúpur, frjór, meðalrakur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   4
     
Heimildir   = 1
     
Fjölgun   Sáning, skipting.
     
Notkun/nytjar   Í skrautblómabeð, í þyrpingar, sem stakstæðar plöntur.
     
Reynsla   Hefur lifað mörg ár í Lystigarðinum, þrífst vel.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Meyjarskjöldur
Meyjarskjöldur
Meyjarskjöldur
Meyjarskjöldur
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is