Jón Thoroddsen - Barmahlíð

Hlíðin mín fríða
hjalla meður græna
og blágresið blíða
og berjalautu væna,
á þér ástaraugu
ungur réð ég festa,
blómmóðir bezta!

Sá ég sól roða
síð um þína hjalla
og birtu boða
brúnum snemma fjalla.
Skuggi skauzt úr lautu,
skreið und gráa steina,
leitandi leyna.

Blómmóðir bezta,
beztu jarðargæða
gaf þér fjöld flesta
faðir mildur hæða.
Hver mun svo, er sér þig,
sálar þjáður dofa,
að gleymi guð lofa?

Hlíð, þér um haga
hlýr æ blási andi,
döggvi vordaga
dögg þig sífrjóvgandi!
Um þig aldrei næði,
af þér svo að kali,
vetur vindsvali!


Aster oolentangiensis
Ættkvísl   Aster
     
Nafn   oolentangiensis
     
Höfundur   Riddel.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Heiðstjarna
     
Ætt   Asteraceae
     
Samheiti  
     
Lífsform   fjölær
     
Kjörlendi   sól
     
Blómlitur   djúpblár, himinblár, bleikur/gul-brúnn hvirfill
     
Blómgunartími   síðsumar-haust
     
Hæð   1-1,5m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Fjölæringur allt að 1,5 m. Blómstönglar smádúnhærðir - snarpir ofan til, stundum nær hárlausir.
     
Lýsing   Lauf allt að 13x6 sm, lensulaga, ydd, heilrennd eða stöku sinnum grunn sagtennt, þykk, hrjúfhærð á efra borði, dúnhærð á neðra borði, stofnlauf með minni stilkum eftir því sem ofar dregur, efstu blöðin stilklaus. Körfur í gisnum skúf á löngum blómstilkum. Reifar 5-8 mm háar, reifablöð skoruð í allmörgum röðum, tígullaga, oddur grænni. Tungublóm allt að 12 mm, 10 -15, blá eða stöku sinnum bleik. Aldin 3-5 mm á lengd, ljós, hárlaus eða því sem næst. Blómgast sumar-haust. Blóm í opnum samsettum klasa, blómstilkar langir, geislar allt að 12 mm að lengd, 10-25 alls, bláir eða stöku sinnum bleikir, hvirfill gulur - gulbrúnn
     
Heimkynni   A N Ameríka
     
Jarðvegur   frjór, framræstur, fremur rakur
     
Sjúkdómar  
     
Harka   5
     
Heimildir   1
     
Fjölgun   skipting að vori, sáning
     
Notkun/nytjar   fjölæringabeð
     
Reynsla   Hefur vaxið í garðinum samfellt frá 1992 í L3-B09
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is