Málsháttur
Lengi býr að fyrstu gerð.
Aster sedifolius
Ættkvísl   Aster
     
Nafn   sedifolius
     
Höfundur   L.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Brennistjarna
     
Ætt   Asteraceae
     
Samheiti   A. acris L.
     
Lífsform   fjölær
     
Kjörlendi   sól
     
Blómlitur   fölfjólublár/gulur-rauðg. hvirfill
     
Blómgunartími   síðsumars
     
Hæð   0,8-1,2m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Blómstönglar allt að 1,2 m, uppréttir með stuttar hliðargreinar, létt hrjúfir.
     
Lýsing   Flest lauf lensulaga til bandlaga, ásætin, heilrend, þau neðri með 3- taugar a.m.k. við grunninn með þéttum kirtildoppum og ilmandi, óslett ofan, þau efri með 1 áberandi miðtaug. Krónur allt að 3,5 sm í þvermál (með útstæðar tungur) nokkrar til margar í hálfsveip eða skúf, sem stundum er með mörg geld stoðblöð. Reifar 4 -4,5 mm háar, bollalaga eða topplaga hvirfilkróna og svifkrans miklu lengri en reifablöðin, sem eru mjög misstór, mjókka frá grunni. Tungur aðeins u.þ.b. 10, ófrjó (með heila stíla ) fölfjólublá aftursveigð eða rúllast aftur með aldrinum. Hvirfilkrónur u.þ.b. 6,5 mm. Svifkrans 5 - 6,5 mm. Blómgast síðsumar-haust.
     
Heimkynni   S, A & M Evrópa
     
Jarðvegur   léttur, framræstur, fremur þurr
     
Sjúkdómar  
     
Harka   6, H1
     
Heimildir   1,2
     
Fjölgun   sáning, skipting að vori
     
Notkun/nytjar   fjölær beð
     
Reynsla   Hefur vaxið í garðinum samfellt frá 1986 í K1-N14 og þrífst með ágætum.
     
Yrki og undirteg.   A. sedifolius ssp. sedifolius. Lauf allt að 5 x 1 sm, daufgræn ofan, ekki loðin, reifablöð meira eða minna ydd í endann, oftast með himnukennda jaðra. Tungur allt að 1,4 sm. Heimk.: A & SA Evrópa Kákasus, N ? Asía.(2) A. sedifolius ssp. canus (Waldstein & Kitaibel) Mer. x Müller. Lauf í mesta lagi 3 sm x 6,5 mm gráleit, gráloðin, einkum neðan. Körfur ekki nema 2 sm í þvermál. Reifablöð meira eða minna snubbótt, laufkennd, tungur 8-10 mm. Heimk.: AM og SA Evrópa.(2) A. sedifolius 'Nanum' (30-40 sm há ) á skilið að fá meiri athygli með sína þéttu blómskipun, hálfkúlulaga þúfumyndaða form, blómsælli en aðaltegundin og blómgast fyrr. Fín með síðblómstrandi murum og grösum á miðlungi þurrum vaxtarstað. (2)
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is