Jón Helgason - úr ljóðinu Á Rauðsgili
Hugrökk teygist á háum legg
hvönnin fram yfir gljúfravegg,
dumbrauðu höfði um dægrin ljós
drúpir hin vota engjarós.


Rhododendron 'Christmas Cheer'
Ættkvísl   Rhododendron
     
Nafn  
     
Höfundur  
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form   'Christmas Cheer'
     
Höf.   (T. Methven & Son 1895) Skotland.
     
Íslenskt nafn  
     
Ætt   Lyngætt (Ericaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Runni.
     
Kjörlendi   Hálfskuggi.
     
Blómlitur   Bleikur.
     
Blómgunartími   Snemmsumars.
     
Hæð   150-175 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Upprétt, meðalhátt, þéttvaxið, yrki með sígræn lauf.
     
Lýsing   Foreldrar (♀ × ♂): R. caucasicum × ? Mjög vinsælt meðalstórt yrki. Blómin eru rósbleik eða bleikhvít með dekkri rákir, verða næstum hvít með aldrinum, ilma ekki. Þau eru bleik í knúbbinn og eru í þéttum, litlum blómskipunum/klösum. Blómin springa út á löngum tíma a.m.k. erlendis. Laufin eru milligræn, með þunna, slétta, brúna hæringu á neðra borði. Runninn er ekki með hreistur. Hann verður 150-175 sm hár á 10 árum og er þéttvaxinn, kröftugur og auðræktaður. Yrkið myndar knúbba að haustinu sem lifa af veturinn og blómstrar allt sumarið frá 2-3 ára aldri.
     
Heimkynni   Yrki.
     
Jarðvegur   Lífefnaríkur og súr.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   H4
     
Heimildir   http://www.hirsutum.info, http://www.rhododendrons.co.uk, http://www.greatplantpicks.org, Cox, Peter & Kenneth 1990: Guide to Choosing Rhododendrons – London.
     
Fjölgun   Síðsumargræðlingar. Auðvelt að láta rætast.
     
Notkun/nytjar   Runninn þarf næringarefnaríkan, vel framræstan jarðveg. Það má bæta jarðveginn með safnhaugamold eða öðrum lífrænum jarðefnum áður en plantað er.
     
Reynsla   Plantan var keypt í Lystigarðinn 2001 og gróðursett í beð það ár. Vetrarskýling frá 2001 til vors 2007. Falleg planta sem kelur lítið og blómstrar mikið árlega.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla   AÐRAR UPPLÝSINGAR: Auðræktuð og yfirleitt sólþolin, þó geta laufin upplitast. Lyngrósirnar eru með grunnt rótakerfi og þurfa reglulega vökvun yfir sumarið, einkum síðsumars þegar knúbbar næsta vors eru að myndast. Plantan er talin þola – 20 °C erlendis. Þetta yrki er stundum ‘neytt’ í gróðurhúsum til að blómstra á öðrum tíma en það er vant og notað sem glæsileg borðskreying um jólin í Bretlandi. Blómstrar síðvetrar í (janúar)-febrúar-mars erlendis.
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is