Sigfús Daðason - Vængjasláttur
Akureyri
mjög skreytt
reynitrjám.

Sá sem gengi um bæinn
á septemberkvöldi:
dimmur skuggi innfjarðarins
fylgdi honum á aðra hönd hvar sem hann færi,
lifandi, kvikur!
Sálarspegill!

Heilagur lundur
rís í hæðir.
Og gangi maður í lundinn
er hann þar einn með sjálfum sér.

Það gustar um limið
og fuglarnir í björtum trjákrónunum
fælast skóhljóð einmanans
og hviðra með vængjaslætti
yfir höfði hans og úti í myrkrinu.

Og upp fyrir honum rennur þá: hvílík
sú dýrð sem einmananum hlotnast.



Oxytropis camestris ssp. sordida
Ættkvísl   Oxytropis
     
Nafn   camestris
     
Höfundur   (L.) DC.
     
Ssp./var   ssp. sordida
     
Höfundur undirteg.   (Willd.) Hartm.
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Hagabroddi
     
Ætt   Ertublómaætt (Fabaceae).
     
Samheiti   Réttara: O. campestris
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Gulur, ljósfjólublár.
     
Blómgunartími   Maí-júlí.
     
Hæð   - 20 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Hagabroddi
Vaxtarlag   Sjá aðaltegund.
     
Lýsing   Bikartennur allt að 4 mm. Krónan gul eða ljósfjólublá. Fáninn ögn lengri en vængirnir, krónutungan oddbaugótt, breiðoddbaugótt eða öfugegglaga.
     
Heimkynni   Skandinavía, heimskautahluti Rússlands.
     
Jarðvegur   Fremur magur, vel framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   3
     
Heimildir   = 1
     
Fjölgun   Sáning.
     
Notkun/nytjar   Í steinhæðir, í fjölæringabeð.
     
Reynsla  
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Hagabroddi
Hagabroddi
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is