Málsháttur
Oft vex laukur af litlu.
Rosa hemsleyana
Ættkvísl   Rosa
     
Nafn   hemsleyana
     
Höfundur   Täckh.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Skýjarós
     
Ætt   Rósaætt (Rosaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Lauffellandi runni
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Bleikur.
     
Blómgunartími   Júlí-ágúst.
     
Hæð   - 200 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Skýjarós
Vaxtarlag   Villirós. Runninn verður um 200 sm hár, einblómstrandi. Stilkar eru aðeins lítið eitt þyrnóttir, þyrnar stuttir, beinir og með breiðan grunn. Smálauf 7-9, oddbaugótt, 2-5 sm löng, tvísagtennt og kirtilsagtennt, hárlaus neðan eða með hæringu á æðastrengjunum. Axlablöð breið, kirtilrandhærð, miðstrengur kirtilhærður.
     
Lýsing   Blómin 3-11, bleik, 3-5 sm breið og með daufan ilm. Blómleggir 1-3 sm langir, þétt kirtilþornhærðir. Bikarblöð með rófu og breiðan, sagtenntan odd. Nýpur langegglaga með langan háls, 2,5 sm langar, appelsínurauðar.
     
Heimkynni   N og M Kína.
     
Jarðvegur   Frjór, vel framræstur, meðalvökvun.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   Z6
     
Heimildir   1, Krüssmann, G. 1978: Handbuch der Laubgeholze. Band III Berlin - Hamburg, http://www.welt-der-rosen,de/duftrosen/_duftrosen.htm, www.pfaf.org/user/Plant.aspx?LatinName=Rosa+hemsleyana
     
Fjölgun   Sáning, Síðsumargræðlingar með hæl, rótarskot, sveiggræðsla 8tekur 12 mánuði).
     
Notkun/nytjar   Rosa hemsleyana er náskyld R. setipoda og til eru þeir sem álíta að best sé að telja hana form af R. sedipoda. Munurinn er sá að R. hemsleyana er lágvaxnari (verður 200 sm há), og bikarblöð eru með hliðarflipa.
     
Reynsla   Rosa hemsleyana var keypt í Lystigarðinn 1994 og gróðursett í beð sama ár, kelur lítið, þrífst vel og vex vel, blómstrar mikið og myndar eldrauðar nýpur.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Skýjarós
Skýjarós
Skýjarós
Skýjarós
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is