Málsháttur
Oft vex laukur af litlu.
Sambucus williamsii
Ættkvísl   Sambucus
     
Nafn   williamsii
     
Höfundur   Hance
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Fjaðuryllir
     
Ætt   Geitblaðsætt (Caprifoliaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Lauffellandi runni.
     
Kjörlendi   Sól, hálfskuggi.
     
Blómlitur   Hvítleitur eða gulleitur.
     
Blómgunartími   Júní- júlí.
     
Hæð   5-6 m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Fjaðuryllir
Vaxtarlag   Runni eða lítið tré, 5-6 m hátt. Gamlar greinar rauðbrún með áberandi, mjó-oddbaugótta korkbletti, mergur brúnleitur.
     
Lýsing   Lauf stakfjöðruð, smálauf (1 eða) 2-eða 3(-5) samsett, hliðarsmálauf egglaga-kringlótt eða mjó-oddbaugótt til aflöng-öfuglensulaga, 5-15 x 1,2-7 sm, grunn fleyglaga eða bogadregin, stundum hjartalaga, ekki sammiða, jaðrar óreglulega sagtenntir, stundum með eina til allmargar kirtiltennur við grunninn eða neðan við miðju, ydd eða odddregin eða rófuydd. Neðsta smálaufaparið legglaust eða með um 0,5 sm langan legg. Endaflipinn egglaga eða öfugegglaga, lítið eitt dúnhærður meðan laufin eru ung, verða hárlaus, leggur endaflipans um 2 sm, grunnur fleyglaga, langydd til rófuydd. Axlablöð mjó-bandlaga eða hafa rýrnað í bláleita totu. Blómskipunin í endastæðum puntlíkum klasa, 5-11 x 4-14 sm, með blómskipunarlegg, stundum lítið eitt dúnhærð, verða fljótt hárlaus. Blómin koma um leið og laufin, eru þétt. Bikarpípa er krukkulaga, um 1 mm, flipar þríhyrndir-lensulaga, ögn styttri en pípan. Krónan bleikleit í knúppinn, hvít eða gulleit þegar þau springa út. Krónupípan er stutt, flipar aflangir eða mjó egglaga-kringlóttir um 2 mm. Fræflar útstæðir um það bil jafn langir og krónufliparnir. Frjóþræðir víkka ögn út við grunninn. Frjóhnappar gulir, eggleg 3-hólfa. Stílar stuttir, fræni 3-deild. Aldin rauð, sjaldan bláleit eða purpurasvört, egglaga eða hálfhnöttótt, 3-5 mm í þvermál. Steinber 2-3, egglaga til oddbaugótt, 2,5-3,5 mm, dálítið hrukkótt.
     
Heimkynni   Kína.
     
Jarðvegur   Sendinn, rakur, meðalfrjór.
     
Sjúkdómar  
     
Harka  
     
Heimildir   efloras.org/florataxon.aspx?flora-id=200022404, www.pfaf.org/user/Plant.aspx?LatinName=Sambucus+williamsii
     
Fjölgun   Sumargræðlingar, sáning.
     
Notkun/nytjar   Í blönduð trjá- og runnabeð. Þolir rok en ekki saltsteink af hafi.
     
Reynsla  
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Fjaðuryllir
Fjaðuryllir
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is