Snorri Hjartarson - Lyng

Gott er að leggjast í lyngið,
sjá lauf glóa, finna kvik
fjaðurmjúk atlot þess, fagna
í fegurð jarðar meðan rauð
og lág sólin lækkar
og lyngbreiðan er ilmgrænt haf
sem ber þig að hljóðri húmströnd
og hylur þig gleymsku.

Spiraea × nudiflora
Ættkvísl   Spiraea
     
Nafn   × nudiflora
     
Höfundur   Zab.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Snoðkvistur
     
Ætt   Rósaætt (Rosaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Lauffellandi runni.
     
Kjörlendi   Sól (hálfskuggi).
     
Blómlitur   Bleikur.
     
Blómgunartími   Sumar.
     
Hæð   - 1,8 m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Snoðkvistur
Vaxtarlag   Uppréttur runni.
     
Lýsing   Lauf allt að 6,5 sm löng, egglaga, tvísagtennt eða djúpskert, næstum hárlaus. Blómin bleik í klasalíkum sveip, allt að 7,5 sm í þvermál.
     
Heimkynni   Garðablendingur (S. chamaedryfolia L. v. ulmifolia × S. bella Sims.).
     
Jarðvegur   Meðalfrjór, neðalrakur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   6
     
Heimildir   = 1
     
Fjölgun   Sumargræðlingar.
     
Notkun/nytjar   Í beð, í þyrpingar og sem stakstæður runni.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum eru til tvær plöntur sem sáð var til 1992 og gróðursettar í beð 1999, báðar kala lítið og vaxa vel, eru um 1,8 m háar og blómstra árlega.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Snoðkvistur
Snoðkvistur
Snoðkvistur
Snoðkvistur
Snoðkvistur
Snoðkvistur
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is