Þuríður Guðmundsdóttir - Rætur
Ég geng um skrúðgarða borgar
og blómin horfa á mig
litríkum framandi augum
og ilmur þeirra er alltaf nýr

Í fjarska situr fölblá gleymmérei
á fötum lítils barns

Því blágresi, holtasóley og steinbrjótur
voru blóm bernsku minnar

Og rætur þeirra
verða alltaf mínar

Amianthum muscitoxicum
Ættkvísl   Amianthum
     
Nafn   muscitoxicum
     
Höfundur   (Walter) A. Gray
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Flekklaus
     
Ætt   Liljuætt (Liliaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Laukur, fjölær.
     
Kjörlendi   Sól og skjól.
     
Blómlitur   Hvítur.
     
Blómgunartími   Júlí-ágúst.
     
Hæð   - 120 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Flekklaus
Vaxtarlag   Fjölær jurt með lauk, sem verður allt að 120 sm há. Laukar í laukhýði. Lauf allt að 60-2 sm, bandlaga, flest grunnlauf.
     
Lýsing   Blómin endastæð, klasar með stoðblöð, allt að 12,5 sm. Blómhlífarblöð ósamvaxin, hvít. Fræflar 6. Aldin þríhyrnt hýði.
     
Heimkynni   SA N Ameríka.
     
Jarðvegur   Meðalfrjór, meðalrakur til þurr.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   4
     
Heimildir   = 1, www.pfaf.org/user/Plant.aspx?LatinName=Amianthum+muscitoxicum
     
Fjölgun   Sáning, skipting.
     
Notkun/nytjar   Allir hlutar plöntunnar eru mjög eitraðir.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum er til ein planta sem sáð var til 1989 og gróðursett í beð 1992, þrífst vel.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Flekklaus
Flekklaus
Flekklaus
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is