Ólafur Jóhann Sigurðsson - Á vordegi
Grundin eignast gullinn fífil,
geislafingur hlýir strjúka
lambakóng með lítinn hnýfil,
lambagrasið rauða og mjúka.

Vappar tjaldur, vellir spói,
verpir í broki mýrispýta.
Bráðum kveikir fenjaflói
fífublysið mjallahvíta.

Bráðum mun í morgunstillu
meðan þokan kveður dranga
ljósberi hjá lágri syllu
lyfta kolli til að anga.

Blíða daga, bjartar nætur
bugðast á með tærum hyljum
eftir laut sem litlir fætur
lásu forðum berum iljum.


Antennaria anaphaloides
Ættkvísl   Antennaria
     
Nafn   anaphaloides
     
Höfundur   Rydb.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Perlulójurt*
     
Ætt   Körfublómaætt (Asteraceae).
     
Samheiti   Antennaria anaphaloides v. straminea B. Boivin; A. pulcherrima (Hooker) Greene ssp. anaphaloides (Rydberg) W. A. Weber; A. pulcherrima v. anaphaloides (Rydberg) G. W. Douglas
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Hvítur til fölbleikur.
     
Blómgunartími   Júní
     
Hæð   15-35(-60) sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Perlulójurt*
Vaxtarlag   Þýfður fjölæringur eða oft með renglur, 15-35(-60) sm hár.
     
Lýsing   Sérbýli. Grunnlauf (skammlíf) 3-5 tauga, mjó-öfuglensulaga eða mjó-oddbaugótt, 2,5-15(-20) x 0,4-2(-2,5) sm, broddydd, bæði borð grá-dúnhærð. Stöngullauf miklu minni em hvirfingarlaufin. Körfur allmargar, í meira eða minna lotnum hálfsveip. Reifablöð í 3-4 röðum, 6-10 mm, lóhærð, oddur hvítur til fölbleikur. Kvenreifablöð hvassydd eða snubbótt, karlreifablöð bogadregnari eða halaydd.
     
Heimkynni   Kanada til M Bandaríkin (Klettafjöll)..
     
Jarðvegur   Magur, vel framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   3
     
Heimildir   1, www.eFloras.org Flora of North America
     
Fjölgun   Skipting, sáning.
     
Notkun/nytjar   Í steinhæðir, beðkanta.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum er til ein planta sem sáð var til 2000, þrífst vel.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Perlulójurt*
Perlulójurt*
Perlulójurt*
Perlulójurt*
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is