Þuríður Guðmundsdóttir - Rætur
Ég geng um skrúðgarða borgar
og blómin horfa á mig
litríkum framandi augum
og ilmur þeirra er alltaf nýr

Í fjarska situr fölblá gleymmérei
á fötum lítils barns

Því blágresi, holtasóley og steinbrjótur
voru blóm bernsku minnar

Og rætur þeirra
verða alltaf mínar

Lilium 'Lemon Pixie'
Ættkvísl   Lilium
     
Nafn  
     
Höfundur  
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form   'Lemon Pixie'
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Skrautlilja*
     
Ætt   Liljuætt (Liliaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölæringur og laukplanta. Asíublendingur (Asiatic hybrid).
     
Kjörlendi   Sólríkur vaxtarstaður eða í hálfskugga. Ræturnar þurfa skugga.
     
Blómlitur   Sítrónugulur með rauðar doppur.
     
Blómgunartími   Ágúst-september.
     
Hæð   25-40 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Skrautlilja*
Vaxtarlag   Uppréttir, laufóttir stönglar.
     
Lýsing   Smávaxin lilja, stönglar eru uppréttir, 25-40 sm háir, með mörg glansandi dökk- til milligræn, mjó-lensulaga lauf. Blómin eru stök, ilma, eru skállaga, sítrónugul með rauðar doppur í miðjunni.
     
Heimkynni   Yrki / Cultivar.
     
Jarðvegur   Frjór, hlutlaus og vel framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka  
     
Heimildir   http://www.halcyonplants.co.uk, http://www.learn2grow.com, http://www.answers.yahoo.com, http://www.americanmeadows.com, http://www.ces.ncsu.edu
     
Fjölgun   Hliðarlaukar.
     
Notkun/nytjar   Sólríkur vaxtarstaður eða í hálfskugga. ‘Lemon Pixie’ er harðgerð og ætti að gróðursetja í hlutlausan, vel framræstan jarðveg, leirkenndan og sendinn, sem hæfilegu magni af lífrænum efnum t.d. laufi eða lauf hefur verið blandað í. Vökvun í meðallagi. Ræturnar þurfa skugga. Plantið með 25-30 sm millibili. Góð í blönduð í fjölæringabeð, beðkanta og líka í ker. Einnig er hún góð til afskurðar. Auðræktuð, glæsileg, dugleg lítil lilja.
     
Reynsla  
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla   AÐRAR UPPLÝSINGAR: Allir liljublendingarnir í ‘Pixie’ seríunni eru kynbættar og ræktaðar í Oregon Bulb Farms í Aurora, Oregon., USA. Asíublendingar eru líklega algengastar og auðræktaðastar af þeim lilju-blendingum sem eru í ræktun. Venjulega bera þær mörg skærlit blóm efst á sterkum stöngli. Asíublendingar eru nú sá hópur garðaliljuyrkja sem er lang algengastur, enda mjög auðvelt að rækta. Þessi blendingar úr þessum hóp kom fyrst fram í Bandaríkjunum og var nefndur Mid-Century blendingar í fyrstu. Í samanburði við austurlandablendinga blómstra Asíublendingar fyrr, plönturnar eru ekki eins hávaxnar, blómin eru ögn minni. Asíublendingar eru komnir af tegundum frá M og A Asíu, svo sem Lilium amabile, L. bulbiferum, L. dauricum og L. lancifolium (syn. L. tigrium) til að nefna nokkrar. Þess vegna eru litbrigðin mörg og breytileikinn mikill. Asíublendingar eru með blóm sem eru upprétt, vita upp á við eða út á við eða eru hangandi, venjulega ilmlaus og eru stjörnulaga með fjölda litbrigða svo sem gulu, appelsínulitu, bleiku, rauðu, hvítu og tvílitu. Nokkrar Asíublendinganna eru gulir svo sem ‘Connecticut King’ og þekktur rauður blendingur er ‘Gran Paradiso’. Asíublendingar þrífast best með blómin í sólinni og neðri hluta stönglanna í skugga. Fjölgað með hreisturgræðlingum.
     
Skrautlilja*
Skrautlilja*
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is