Snorri Hjartarson - Lyng

Gott er að leggjast í lyngið,
sjá lauf glóa, finna kvik
fjaðurmjúk atlot þess, fagna
í fegurð jarðar meðan rauð
og lág sólin lækkar
og lyngbreiðan er ilmgrænt haf
sem ber þig að hljóðri húmströnd
og hylur þig gleymsku.

Lilium 'Pink Pixie'
Ættkvísl   Lilium
     
Nafn  
     
Höfundur   Edward A. McRae í Boring, Oregon, USA.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form   'Pink Pixie'
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Skrautlilja*
     
Ætt   Liljuætt (Liliaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölæringur og laukplanta. Asíublendingur (Asiatic hybrid).
     
Kjörlendi   Sólríkur vaxtarstaður.
     
Blómlitur   Djúpbleikur með rjómalita slikju í gininu.
     
Blómgunartími   September.
     
Hæð   40-45 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Skrautlilja*
Vaxtarlag   Uppréttir, laufóttir stönglar.
     
Lýsing   Blómin eru stór og opin, djúpbleik með rjómalita slikju í gininu. Stönglarnir eru 40-45 sm háir, uppréttir, sterklegir, venjulega með mörg blóm í toppinn, Lauf glansandi græn-dökkgræn, mjó-lensulaga.
     
Heimkynni   Yrki / Cultivar.
     
Jarðvegur   Lífefnaríkur og vel framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka  
     
Heimildir   http://www.learn2grow, http://www.answers.yahoo.com, http://www.americanmeadows.com, http://www.ces.ncsu.edu
     
Fjölgun  
     
Notkun/nytjar   Sólríkur vaxtarstaður, vel framræstur jarðvegur, leirborinn og sendinn, lífefnaríkur. Vökvun í meðallagi. Gróðursetjið laukana með 30-40 sm millibili. ‘Pink Pixie' er hentug til afskurðar, en líka til ræktunar í kerum eða í blandaða beðkanta. Litfögur og auðræktuð, dugleg, smávaxin lilja.
     
Reynsla  
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla   AÐRAR UPPLÝSINGAR: Allir liljublendingarnir í ‘Pixie’ seríunni eru kynbættar og ræktaðar í Oregon Bulb Farms í Aurora, Oregon., USA. Asíublendingar eru nú sá hópur garðaliljuyrkja sem er lang algengastur, enda mjög auðvelt að rækta. Þessi blendingar úr þessum hóp kom fyrst fram í Bandaríkjunum og var nefndur Mid-Century blendingar í fyrstu. Í samanburði við austurlandablendinga blómstra Asíublendingar fyrr, plönturnar eru ekki eins hávaxnar, blómin eru ögn minni. Asíublendingar eru komnir af tegundum frá M og A Asíu, svo sem Lilium amabile, L. bulbiferum, L. dauricum og L. lancifolium (syn. L. tigrium) til að nefna nokkrar. Þess vegna eru litbrigðin mörg og breytileikinn mikill. Asíublendingar eru með blóm sem eru upprétt, vita upp á við eða út á við eða eru hangandi, venjulega ilmlaus og eru stjörnulaga með fjölda litbrigða svo sem gulu, appelsínulitu, bleiku, rauðu, hvítu og tvílitu. Nokkrar Asíublendinganna eru gulir svo sem ‘Connecticut King’ og þekktur rauður blendingur er ‘Gran Paradiso’. Asíublendingar þrífast best með blómin í sólinni og neðri hluta stönglanna í skugga. Fjölgað með hreisturgræðlingum.
     
Skrautlilja*
Skrautlilja*
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is