Jón Helgason - úr ljóðinu Á Rauðsgili
Hugrökk teygist á háum legg
hvönnin fram yfir gljúfravegg,
dumbrauðu höfði um dægrin ljós
drúpir hin vota engjarós.


Cassiope hypnoides
Ættkvísl   Cassiope
     
Nafn   hypnoides
     
Höfundur   (L.) D. Don.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Mosalyng
     
Ætt   Lyngætt (Ericaceae)
     
Samheiti  
     
Lífsform   Sígrænn dvergrunni
     
Kjörlendi   Sól, snjóskýli
     
Blómlitur   Hvítur
     
Blómgunartími   Júníbyrjun
     
Hæð   5-15 sm
     
Vaxtarhraði   Hægvaxta
     
 
Vaxtarlag   Jarðlægur dvergrunni, líkist mosa við fyrstu sýn, myndar breiður.
     
Lýsing   Lauf smá, þétt, mjög stutt, ljósgræn. Blómleggir langir fínhærðir dumbrauðir. Blómin drúpandi, klukkulaga, hvít.
     
Heimkynni   Norðurhvel (Arktísk)
     
Jarðvegur   Fremur rakur, súr.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   2
     
Heimildir   1
     
Fjölgun   Sumargræðlingar, sáning, rótarskot.
     
Notkun/nytjar   Steinhæðir, náttúrulegir garðar.
     
Reynsla   Er af og til í Lystigarðinum, þ. e. íslenskar plöntur sem safnað er úti í náttúrunni, en lifir skamman tíma. Þarf vetrarskýli. Harðgerður dvergrunni, algengur á norður og austurlandi.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is