Sigfús Daðason - Vængjasláttur
Akureyri
mjög skreytt
reynitrjám.

Sá sem gengi um bæinn
á septemberkvöldi:
dimmur skuggi innfjarðarins
fylgdi honum á aðra hönd hvar sem hann færi,
lifandi, kvikur!
Sálarspegill!

Heilagur lundur
rís í hæðir.
Og gangi maður í lundinn
er hann þar einn með sjálfum sér.

Það gustar um limið
og fuglarnir í björtum trjákrónunum
fælast skóhljóð einmanans
og hviðra með vængjaslætti
yfir höfði hans og úti í myrkrinu.

Og upp fyrir honum rennur þá: hvílík
sú dýrð sem einmananum hlotnast.



Spiraea japonica 'Ruberrima'
Ættkvísl   Spiraea
     
Nafn   japonica
     
Höfundur   (L.) Desv.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form   'Ruberrima'
     
Höf.   (fyrir 1893).
     
Íslenskt nafn   Japanskvistur
     
Ætt   Rósaætt (Rosaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Lauffellandi runni.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Dökkbleikur.
     
Blómgunartími   Sumar.
     
Hæð   - 1 m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Japanskvistur
Vaxtarlag   Þéttvaxinn lauffellandi runni, allt að 1 m hár, fremur samanrekinn í vextinum, greinar verða næstum hárlausar.
     
Lýsing   Blómskipun fínhærð, blómin dökkbleik.
     
Heimkynni   Yrki.
     
Jarðvegur   Meðalfrjór, meðalrakur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   Z5
     
Heimildir   7
     
Fjölgun   Sumargræðlingar.
     
Notkun/nytjar   Í beð, í þyrpingar, í kanta.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum er til ein aðkeypt planta frá 1995, þrífst vel og er blómrík.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Japanskvistur
Japanskvistur
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is