Jón Thoroddsen - Barmahlíð

Hlíðin mín fríða
hjalla meður græna
og blágresið blíða
og berjalautu væna,
á þér ástaraugu
ungur réð ég festa,
blómmóðir bezta!

Sá ég sól roða
síð um þína hjalla
og birtu boða
brúnum snemma fjalla.
Skuggi skauzt úr lautu,
skreið und gráa steina,
leitandi leyna.

Blómmóðir bezta,
beztu jarðargæða
gaf þér fjöld flesta
faðir mildur hæða.
Hver mun svo, er sér þig,
sálar þjáður dofa,
að gleymi guð lofa?

Hlíð, þér um haga
hlýr æ blási andi,
döggvi vordaga
dögg þig sífrjóvgandi!
Um þig aldrei næði,
af þér svo að kali,
vetur vindsvali!


Juniperus horizontalis 'Frosti'
Ættkvísl   Juniperus
     
Nafn   horizontalis
     
Höfundur   Moench.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form   'Frosti'
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Skriðeinir
     
Ætt   Sýprisætt (Cupressaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Sígrænn runni.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Karlblóm gulleit.
     
Blómgunartími  
     
Hæð   30-50 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Skriðeinir
Vaxtarlag  
     
Lýsing   Sjá aðaltegund.
     
Heimkynni   Kvæmi.
     
Jarðvegur   Léttur, vel framræstur, fremur magur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   4
     
Heimildir  
     
Fjölgun   Síðsumargræðlingar.
     
Notkun/nytjar  
     
Reynsla   Í Lystigarðinum er til ein planta sem keypt var 2000 undir þessu nafni, gróðursett í beð 2001, vetrarskýling 2001-2007. Mjög falleg, kelur ekkert.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Skriðeinir
Skriðeinir
Skriðeinir
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is