Páll Ólafsson, Ljóðið Vetrarkveðja
Margt er gott að muna þér
þó mér þú fyndist langur.
Farðu vel, þú færðir mér
fögnuð bæði og angur.

Þó að nísti frostið fast
og fölni grænir hagar
eftir þetta kuldakast
koma betri dagar.
Chionodoxa luciliae 'Alba'
Ættkvísl   Chionodoxa
     
Nafn   luciliae
     
Höfundur   Boiss.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form   'Alba'
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Fannastjarna
     
Ætt   Liljuætt (Liliaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær laukjurt.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Hvítur.
     
Blómgunartími   Vor.
     
Hæð   - 20 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Lauf oft baksveigð, 7-20 sm.
     
Lýsing   Blómstöngull oftast 1 á lauk, allt að 14 sm hár með 1 eða 2 blóm. Blómin upprétt. Blómhlífin hvít, pípan 2,5-4 mm. Flipar 1,2-2 sm x 3-8 mm. Frjóþræðir 2,5 mm og 3 mm, hvítir.
     
Heimkynni   Yrki.
     
Jarðvegur   Meðalfrjór, lífefnaríkur, vel framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   4
     
Heimildir   = 1
     
Fjölgun   Sáning, hliðarlaukar, (laukar eru settir 5-7 sm djúpt).
     
Notkun/nytjar   Sem undirgróður, í blómaengi, í grasflatir, í steinhæðir.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum eru til plöntur sem komu sem laukar 1982 og 2014, þrífast vel.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is