Sigfús Daðason - Vængjasláttur
Akureyri
mjög skreytt
reynitrjám.

Sá sem gengi um bæinn
á septemberkvöldi:
dimmur skuggi innfjarðarins
fylgdi honum á aðra hönd hvar sem hann færi,
lifandi, kvikur!
Sálarspegill!

Heilagur lundur
rís í hæðir.
Og gangi maður í lundinn
er hann þar einn með sjálfum sér.

Það gustar um limið
og fuglarnir í björtum trjákrónunum
fælast skóhljóð einmanans
og hviðra með vængjaslætti
yfir höfði hans og úti í myrkrinu.

Og upp fyrir honum rennur þá: hvílík
sú dýrð sem einmananum hlotnast.



Lewisia cotyledon v. howellii 'Rose Splendour'
Ættkvísl   Lewisia
     
Nafn   cotyledon
     
Höfundur   (S. Watson) Robinson
     
Ssp./var   v. howellii
     
Höfundur undirteg.   (S. Watson) Jeps.
     
Yrki form   'Rose Splendour'
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Stjörnublaðka
     
Ætt   Grýtuætt (Portulacaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Sumargræn, fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Fölbleikur.
     
Blómgunartími   Maí-júní.
     
Hæð   - 30 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Stjörnublaðka
Vaxtarlag   Sígrænn fjölæringur, allt að 30 sm hár í blóma, með lauf sem mynda þétta, flata, sammiðja hvirfingu, sem er allt að 30 sm í þvermál.
     
Lýsing   Blómin fölbleik.
     
Heimkynni   Yrki.
     
Jarðvegur   Léttur, sendinn, meðalframræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   6
     
Heimildir   1
     
Fjölgun   Skipting.
     
Notkun/nytjar   Í steinhæðir, í skriðubeð, í hlaðna steinveggi. Gott er að setja möl kringum rótarhálsinn svo að vatn renni frá honum og valdi ekki rotnun.
     
Reynsla   Þrífst vel í Lystigarðinum, ber falleg blóm og sáir sér dálítið.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Stjörnublaðka
Stjörnublaðka
Stjörnublaðka
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is