Vorið góða, grænt og hlýtt (Heinrich Heine, þýðing)
Vorið góða, grænt og hlýtt,
græðir fjör um dalinn,
allt er nú sem orðið nýtt,
ærnar, kýr og smalinn.

Kveður í runni, kvakar í mó
kvikur þrastasöngur;
eins mig fýsir alltaf þó:
aftur að fara í göngur.
Scutellaria przewalskii
Ættkvísl   Scutellaria
     
Nafn   przewalskii
     
Höfundur   Juz.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Kögurskjaldberi
     
Ætt   Varablómaætt (Lamiaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær hálfrunni.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Gulur með purpura lit á krónutungunni.
     
Blómgunartími   Ágúst-september.
     
Hæð   6- 22 sm hár.
     
Vaxtarhraði  
     
 
Kögurskjaldberi
Vaxtarlag   Fjölær hálfrunni. Jarðstönglar trékenndir, allt að 1,5 sm í þvermál, bugðóttir. Stönglar purpuralitir, margir, 6-22 sm háir, uppsveigðir eða hálf-jarðlægir, um 1,5 mm í þvermál, litið eitt smá-lóhærð.
     
Lýsing   Laufleggir (1,5)5-10(-14) mm, flatur og með mjóan væng, lóhærðir, laufblaðkan egglaga til oddbaugótt, (0,6-)1,2-2,2 x (0,4-)0,8-1,5(-2,2) sm, Lítið eitt dúnhærð á efra borði, grálóhærð á neðra borði, hliðaræðastrengir áberandi djúplægir á efra borði, grunnur næstum þverstýfður, jaðar 4-7 fjaðurskiptur, hvassydd. flipar minna á fingur, 2-6(-8) x um 1 mm. Klasar 2,5-5 sm, allt að 7 sm þegar aldinin eru þroskuð. Stoðblöð purpura efst, breið-egglaga, 8-)12-15 sm x um 1 mm, himnukennd, hvassydd til langydd, langhærð stundum með stuttanlegg, kirtilhár innanum hin. Blómleggur um 5 mm langhræður. Bikar um 2 mm, langhærður á ytra borði, með leggjuð kirtilhár, um 4 mm þegar aldinin eru þroskuð, skjöldur um 1,5 mm, um 4 mm þegar aldinin eru þroskuð. Krónan er gul eða gul með purpuralit á krónutungunni, 2,5-3,3 sm, mjúkhærð á ytra borði, með stutt kirtilhár á legg. Krónupípan með sekk við grunninn, um 1,5 mm breið í miðjunni, víkkar smámsaman upp á við, allt að 7 mm breið í ginið. miðflipi á efri vör breiðegglaga, framjöðruð í oddinn, hliðaflipar egglaga. Smáhnetur þríhyrndar, egglaga, um 1,5 x 1 mm, þétt grálóhærð, með bungu að 1/3 við grunnin á efra borði.
     
Heimkynni   Ganzu, Xinjiang, Kirgystan.
     
Jarðvegur   Sendinn eða malarborinn, en ekki þurr.
     
Sjúkdómar  
     
Harka  
     
Heimildir   = http://www.efloras.org/florataxon.aspx?flora_id=2&taxon_id=129910&key_no=8
     
Fjölgun   Sáning, skipting.
     
Notkun/nytjar   Í beð með fjölærum jurtum.
     
Reynsla   Hefur lifað frá 1991 í Lystigarðinum og þrifist vel.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Kögurskjaldberi
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is