Í morgunsárið - Ragna Sigurðardóttir
Í morgunsárið greiðir hún sér með trékambi. Hægt með föstum
strokum. Vöxturinn er svo mikill að hana kitlar í svörðinn. Hún
strýkur hendinni yfir gróðurinn. Finnur blóm springa út undir
fingurgómunum. Sóleyjar og baldursbrár. Hún leggur kambinn frá
sér. Fer út í garðinn og krýpur. Kippir upp kartöflugrösum. Rótar og
grefur með berum höndum. Djúpt ofan í moldinni finnur hún sætar og
safaríkar appelsínur.
Crocus vernus ssp. vernus 'Flower Record'
Ættkvísl   Crocus
     
Nafn   vernus
     
Höfundur   (L.) Mill.
     
Ssp./var   ssp. vernus
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form   'Flower Record'
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Vorkrókus
     
Ætt   Sverðliljuætt (Iridaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Hnýði.
     
Kjörlendi   Sólríkur vaxtarstaður.
     
Blómlitur   Fjólublár.
     
Blómgunartími   Vorblómstrandi.
     
Hæð   Um 8 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vorkrókus
Vaxtarlag  
     
Lýsing   Stórblóma plöntur með fjólublá blóm sem eru ljósari innan einkum við grunninn.
     
Heimkynni   Yrki.
     
Jarðvegur   Léttur, mildinn, vel framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   4
     
Heimildir   = 1, Upplýsingar á umbúðum laukanna.
     
Fjölgun   Hliðarhnýði.
     
Notkun/nytjar   Í trjá- eða runnabeð, í beðkanta.
     
Reynsla   Hnýði úr blómabúð (frá Hollandi) voru gróðursett í beð 1988, N6-02 og C11-34. Þrífst vel.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Vorkrókus
Vorkrókus
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is